Íslandsmót barna og unglinga hófst í morgun
Elín Þórdís Pálsdóttir og Hrannar frá Austurkoti voru á meðal fyrstu keppenda.
Það verður mikið um dýrðir á Brávöllum á Selfossi nú um helgina þar sem fram fer Íslandsmót barna og unglinga. Mótið hófst nú rétt í þessu á keppni í fimmgangi unglinga. Eiðfaxi mun að sjálfsögðu verða á staðnum um helgina og fylgjast með okkar framtíðar knöpum etja kappi.
Auk þess mun lokamót Meistaradeildarinnar fara fram hér á laugardagskvöldið, þannig það verður nóg um að vera fyrir alla hestaáhugamenn.
Dagskrá fimmtudagsins
| Atriði | Fimmtudagur |
| 9:00-9:30 | Knapafundur í reiðhöll |
| 10:00-12:15 | F2 unglingar |
| 12:15-13:30 | V2 Barna |
| 13:30-14:15 | Matur |
| 14:15-16:45 | V1 Unglinga knapi 1-25 |
| 16:45-17:00 | Kaffihlé |
| 17:00-19:45 | V1 Unglinga knapi 26-53 |
| 20:00-22:00 | Völlur opin til æfinga |
Styttu haustið með EiðfaxaTV