Lilja Rún er Íslandsmeistari barna í fjórgangi
Lilja Rún Sigurjónsdóttir Íslandsmeistari barna
Það er engu til logið þegar sagt er að úrslit í barnaflokki hafi verið spennandi og knaparnir áberandi prúðir og hestakostur góður. Það var Lilja Rún Sigurjónsdóttir sem stóð uppi sem sigurvegari í þessari grein og er því Íslandsmeistari í fjórgangi barna árið 2020. En þrír efstu knapar komu úr Hestamannafélaginu Fáki.
Í öðru sæti varð Sigurbjörg Hegadóttir á Elvu frá Auðsholtshjáleigu og í því þriðja Ragnar Snær Viðarsson á Rauðku frá Ketilsstöðum.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn | |
| 1 | Lilja Rún Sigurjónsdóttir / Þráður frá Egilsá | 6,47 | |
| 2 | Sigurbjörg Helgadóttir / Elva frá Auðsholtshjáleigu | 6,43 | |
| 3 | Ragnar Snær Viðarsson / Rauðka frá Ketilsstöðum | 6,37 | |
| 4 | Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson / Gjafar frá Hæl | 6,20 | |
| 5 | Oddur Carl Arason / Órnir frá Gamla-Hrauni | 6,10 | |
| 6 | Kolbrún Sif Sindradóttir / Orka frá Stóru-Hildisey | 6,07 | |
Styttu haustið með EiðfaxaTV