Úrslit á Gæðingamóti Hrings 2020
Laugardaginn 20.júní fór gæðingmót Hestamannafélagsins Hrings fram á Hringholtsvelli á Dalvík. Þátttaka var ágæt og blíðan lék við mótsgesti.
Gangster frá Árgerði stóð efstur A-flokks gæðinga með einkunnina 8,86 í úrslitum knapi á honum var Stefán Birgir Stefánsson. í B-flokki var það Senjar frá Akureyri sem stóð efstur með 8,41 í einkunn og var knapi á honum Valgerður Sigurbergsdóttir. Í tölti T1 var það Bjarni Jónasson sem vann á Dofra frá Sauðárkróki með 7,61 í einkunn. Hér fyrir neðan má sjá allar niðurstöður mótsins.
A flokkur
| A úrslit | |||||
| Sæti | Hross | Knapi | Litur | Aðildarfélag eiganda | Einkunn |
| 1 | Gangster frá Árgerði | Stefán Birgir Stefánsson | Rauður/milli-stjörnóttglófext | Funi | 8,86 |
| 2 | Korgur frá Garði | Bjarni Jónasson | Rauður/dökk/dr.einlittglófext | Skagfirðingur | 8,81 |
| 3 | Sproti frá Sauðholti 2 | Svavar Örn Hreiðarsson | Rauður/sót-einlitt | Hringur | 8,71 |
| 4 | Vængur frá Grund | Anna Kristín Friðriksdóttir | Jarpur/milli-einlitt | Hringur | 8,59 |
| 5 | Dagur frá Strandarhöfði | Stefán Friðgeirsson | Leirljós/Hvítur/milli-einlitt | Hringur | 8,47
|

Verðlaunahafar í A-flokki
B- flokkur
| A úrslit | |||||
| Sæti | Hross | Knapi | Litur | Aðildarfélag eiganda | Einkunn |
| 1 | Senjor frá Akureyri | Valgerður Sigurbergsdóttir | Jarpur/milli-einlitt | Léttir | 8,41 |
| 2 | Glóð frá Dalvík | Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson | Rauður/milli-einlitt | Hringur | 8,39 |
| 3 | Goði frá Möðrudal | María Ósk Ómarsdóttir | Bleikur/fífil-skjótt | Léttir | 8,35 |
| 4 | Vökull frá Litla-Garði | Gestur Júlíusson | Rauður/milli-stjörnótt | Léttir | 8,10 |
| 5 | Gutti frá Lækjarbakka | Ingunn Birna Árnadóttir | Brúnn/milli-einlitt | Léttir | 8,02 |

Verðlaunahafar í B-flokki
| Tölt T1
A úrslit |
|||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Bjarni Jónasson | Dofri frá Sauðárkróki | Brúnn/mó-einlitt | Skagfirðingur | 7,61 |
| 2 | Valgerður Sigurbergsdóttir | Segull frá Akureyri | Brúnn/dökk/sv.einlitt | Léttir | 6,83 |
| 3 | Atli Sigfússon | Seðill frá Brakanda | Brúnn/milli-einlitt | Léttir | 6,78 |
| 4 | Stefán Friðgeirsson | Hrafn frá Syðra-Fjalli I | Hringur | 6,33 | |
| 5 | Klara Ólafsdóttir | Glóð frá Ytri-Skjaldarvík | Rauður/dökk/dr.einlitt | Léttir | 6,22 |

Verðlaunahafar í tölti
Tölt T3
| A úrslit | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | María Ósk Ómarsdóttir | Húni frá Akureyri | Brúnn/mó-einlitt | Léttir | 6,61 |
| 2 | Brynhildur Heiða Jónsdóttir | Ásaþór frá Hnjúki | Brúnn/milli-einlitt | Hringur | 6,11 |
| 3 | Margrét Ósk Friðriksdóttir | Flinkur frá Íbishóli | Brúnn/milli-skjótt | Þjálfi | 5,67 |
| 4 | Kristinn Ingi Valsson | Þröstur frá Dæli | Jarpur/dökk-einlitt | Hringur | 5,50 |
| 5 | Katrín Von Gunnarsdóttir | Eðall frá Miðsitju | Jarpur/korg-einlitt | Þjálfi | 5,39 |

Verðlaunahafar T3
| Flugskeið 100m P2 | |||||
| Opinn flokkur | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Tími |
| 1 | Sveinbjörn Hjörleifsson | Drífa Drottning frá Dalvík | Grár/rauðureinlitt | Hringur | 8,04 |
| 2 | Sveinbjörn Hjörleifsson | Náttar frá Dalvík | Brúnn/milli-einlitt | Hringur | 9,09 |
| 3 | Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson | Gjafar frá Hrafnsstöðum | Bleikur/fífil-tvístjörnótt | Hringur | 9,34 |

Verðlaunahafar í skeiði
Barnaflokkur
| A úrslit | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Jósef Orri Axelsson | Aspar frá Ytri-Bægisá I | Grár/mósóttureinlitt | Léttir | 8,53 |
| 2 | Arnór Darri Kristinsson | Brimar frá Hofi | Brúnn/milli-einlitt | Hringur | 8,32 |
| 3 | Heiða María Arnarsdóttir | Hulda frá Leirubakka | Rauður/milli-stjörnótt | Léttir | 8,30 |
| 4H | Sandra Björk Hreinsdóttir | Frægur frá Hólakoti | Brúnn/dökk/sv.einlitt | Léttir | 8,19 |
| 5H | Karítas Lind Guðmundsdóttir | Örn frá Grund | Hringur | 8,19 |

Verðlaunahafar í Barnaflokki
Unglingaflokkur
| A úrslit | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Katrín Von Gunnarsdóttir | Kátína frá Steinnesi | Brúnn/milli-skjótt | Þjálfi | 8,38 |
| 2 | Bil Guðröðardóttir | Drífandi frá Hryggstekk | Rauður/milli-einlitt | Hringur | 8,27 |
| 3 | Nikola Maria Anisiewic | Drift frá Dalvík | Jarpur/milli-einlitt | Hringur | 8,08 |
| 4 | Áslaug Lóa Stefánsdóttir | Sveifla frá Hafsteinsstöðum | Rauður/milli-stjörnótt | Léttir | 7,22 |
| 5 | Aldís Arna Óttarsdóttir | Töfri frá Akureyri | Brúnn/milli-einlitt | Léttir | 5,17 |

Verðlaunahafar í unglingaflokki
Á Gæðingamóti Hrings ár hvert er efsta Hringshesti í A- og B- flokki veittur farandbikar til varðveislu. Lilja Guðnadóttir, formaður Hrings, veitti verðlaunin.
Að þessu sinni hlaut Glóð frá Dalvík B-flokks bikarinn, knapi á henni var Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson.
Í A-flokki var það Sproti frá Sauðholti 2, setinn af Svavari Erni Hreiðarssyni, sem hlaut hæsta einkunn þeirra hesta sem eru í eigu félagsmanna Hrings.
Styttu haustið með EiðfaxaTV