Vilborg og Sigur sigurvegarar í fjórgangi í 1.flokki
Það má segja að A-úrslit í 1.flokki í fjórgangi hafi minnt á allra sterkustu úrslit í meistaraflokki slíkur var hestakosturinn og litlu munaði á þremur efstu hrossum. Það fór svo að Vilborg Smáradóttir stóð uppi sem sigurvegari á hesti sínum Sigri frá Stóra-Vatnsskarði með 7,20 í einkunn í öðru sæti varð Saga Steinþórsdóttir á Móa frá Álfhólum en hún varð einnig Reykjavíkurmeistari með einkunnina 7,17 og í þriðja sætinu varð Sunna Sigríður Guðmundsdóttir á Nóa frá Vatnsleysu með 7,13 í einkunn
A-úrslit í fjórgangi 1.flokki
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Vilborg Smáradóttir / Sigur frá Stóra-Vatnsskarði | 7,20 |
| 2 | Saga Steinþórsdóttir / Mói frá Álfhólum | 7,17 |
| 3 | Sunna Sigríður Guðmundsdóttir / Nói frá Vatnsleysu | 7,13 |
| 4 | Elín Árnadóttir / Blær frá Prestsbakka | 6,67 |
| 5 | Elín Magnea Björnsdóttir / Melódía frá Hjarðarholti | 6,63 |
| 6 | Marín Lárensína Skúladóttir / Hafrún frá Ytra-Vallholti | 6,57 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV