Siguroddur sigraði fjórgang (V2) í meistaraflokki

  • 5. júlí 2020
  • Fréttir

Úrslit í fjórgangi (V2) í meistaraflokki voru nú að klárast rétt í þessu. Það var Siguroddur Pétursson sem stóð efstur á Eyju frá Hrísdal með 7,17 í einkunn, Lena Zielinski og Rjúpa frá Þjórsárbakka urðu í öðru sæti með einkunnina 6,73 og í þriðja sæti varð Reykjavíkurmeistarinn í þessari grein Hrefna María Ómarsdóttir á Evu frá Álfhólum með 6,60 í einkunn.

A-úrslit fjórgangur Meistara (V2)

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Siguroddur Pétursson / Eyja frá Hrísdal 7,17
2 Lena Zielinski / Rjúpa frá Þjórsárbakka 6,73
3 Hrefna María Ómarsdóttir / Eva frá Álfhólum 6,60
4 Ásmundur Ernir Snorrason / Kristall frá Strandarhöfði 6,53
5 Sigurður Sigurðarson / Narfi frá Áskoti 6,47
6 Eva Dyröy / Kristall frá Hákoti 6,13
7 Kári Steinsson / Logi frá Lerkiholti 6,10

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link