Ragnhildur og Vákur yfir áttuna í úrslitum í fjórgangi meistara

  • 5. júlí 2020
  • Fréttir

Það má segja að úrslitin í fjórgangi (V1) í meistaraflokki hafi verið í háum gæðaflokki eins og sést á einkunnum hér fyrir neðan. Ragnhildur Haraldsdóttir stóð þó uppi sem sigurvegari á Váki frá Vatnsenda með í einkunn 8,03 í öðru sæti varð Jakob Svavar og Hálfmáni frá Steinsholti með 7,90 og í þriðja sætinu Jóhanna Margrét Snorradóttir á Bárði frá Melabergi með 7,87 í einkunn.

A-úrslit fjórgangur (V1) meistaraflokki

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Ragnhildur Haraldsdóttir / Vákur frá Vatnsenda 8,03
2 Jakob Svavar Sigurðsson / Hálfmáni frá Steinsholti 7,90
3 Jóhanna Margrét Snorradóttir / Bárður frá Melabergi 7,87
4 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir / Óskar frá Breiðstöðum 7,73
5 Hanna Rún Ingibergsdóttir / Grímur frá Skógarási 7,57
6 Helga Una Björnsdóttir / Hnokki frá Eylandi 7,47

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link