Arnar Máni Reykjavíkurmeistari í fimmgangi (F2) ungmenna

  • 5. júlí 2020
  • Fréttir

Þau voru spennandi úrslitin í fimmgangi (F2) ungmenna og litlu munaði á tveimur efstu knöpum þeim Arnari Mána og Charlotte Hütter því það munaði einungis 0,03 á þeim tveimur. Arnar Máni Sigurjónsson varð þó í efsta sæti á Blesu frá Húnsstöðum en einkunn hans var 6,60 í öðru sæti varð Charlotte Hütter á Korpi frá Steinnesi með 6,57 í einkunn og í þriðja sæti varð Glódís Rún Sigurðardóttir á Sólmyrkva frá Hárlaugsstöðum 2 með 6,00 í einkunn.

Arnar Máni varð einnig Reykjavíkurmeistari.

A-úrslit fimmgangur (F2) Ungmenna

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Arnar Máni Sigurjónsson / Blesa frá Húnsstöðum 6,60
2 Charlotte Seraina Hütter / Korpur frá Steinnesi 6,57
3 Glódís Rún Sigurðardóttir / Sólmyrkvi frá Hárlaugsstöðum 2 6,00
4 Hafþór Hreiðar Birgisson / Náttúra frá Flugumýri 5,98
5 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir / Straumur frá Hríshóli 1 5,40

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link