Siggi Sig og Skugga-Sveinn efstir í fimmgangi (F2) meistara

  • 5. júlí 2020
  • Fréttir

Áfram halda úrslit í fimmgangi og nú voru það a-úrslit í fimmgangi (F2) meistaraflokki. Sigurður Sigurðarson sigraði þá keppni á Skugga-Sveini frá Þjóðólfshaga 1 með 7,10 í einkunn í öðru sæti varð Kári Steinsson á Aski frá Akranesi með 7,05 í einkunn en hann varð jafnfram Reykjavíkurmeistari í þriðja sæti varð Haukur Baldvinsson á Sölva frá Stuðlum með 6,88 í einkunn.

 

A-úrslit fimmgangur (F2) Meistaraflokkur

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Sigurður Sigurðarson / Skugga-Sveinn frá Þjóðólfshaga 1 7,10
2 Kári Steinsson / Askur frá Akranesi 7,05
3 Haukur Baldvinsson / Sölvi frá Stuðlum 6,88
4 Ásmundur Ernir Snorrason / Smári frá Sauðanesi 6,52
5 Tómas Örn Snorrason / KK frá Grenstanga 6,38
6 Jakob Svavar Sigurðsson / Hafliði frá Bjarkarey 5,86

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link