Teitur og Atlas héldu forystunni í fimmgangi (F1) meistara

  • 5. júlí 2020
  • Fréttir

Það var frábær skemmtun að fylgjast með keppni í fimmgangi meistara sem lauk nú rétt í þessu þar sem hvorki meira né minna en átta knapar og hestar tóku þátt. Það er til marks um gæðin að allir keppendur hlutu einkunn yfir 7,00.

Teitur Árnason og Atlas frá Hjallanesi stóðu að lokum uppi sem sigurvegarar en þeir komu inn í úrslitin eftir forkeppnina, Teitur er jafnframt Reykjavíkurmeistari. í öðru sæti varð Hinrik Bragason á Byr frá Borgarnesi með 7,64 og skammt undan var sigurvegari B-úrslita frá því í gær, Sylvía Sigurbjörnsdóttir, á Héðni-Skúla frá Oddhóli með 7,62 í einkunn.

Þá var við sama tilefni krýndur samanlagður fimmgangsmeistari í meistaraflokki Sigurður V. Matthíasson en titilinn hlaut hann á Tindi frá Eylandi.

 

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Teitur Árnason / Atlas frá Hjallanesi 1 7,67
2 Hinrik Bragason / Byr frá Borgarnesi 7,64
3 Sylvía Sigurbjörnsdóttir / Héðinn Skúli frá Oddhóli 7,62
4 Viðar Ingólfsson / Huginn frá Bergi 7,36
5 Árni Björn Pálsson / Jökull frá Breiðholti í Flóa 7,31
6 Sigurður Vignir Matthíasson / Slyngur frá Fossi 7,29
7 Hanna Rún Ingibergsdóttir / Dropi frá Kirkjubæ 7,26
8 Valdís Björk Guðmundsdóttir / Fjóla frá Eskiholti II 7,10

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link