Bjarndís Rut er gæðingameistari barna árið 2020

  • 19. júlí 2020
  • Fréttir

Bjarndís er gæðingameistari ársins 2020 í barnaflokki

Yngstu keppendurnir hér á Meistaramóti Íslands í gæðingakeppni stóðu sig frábærlega eins og þeirra er von og vísa. Barnaflokkur í gæðingakeppni er skemmtileg keppnisgrein en keppendur mega ráða hvort þeir sýna tölt eða brokk og svo er hleypt til stökks.

Bjarndís Rut Ragnarsdóttir sigraði keppinauta sína í Barnaflokki á Tenór frá Hemlu II og hlaut í heildareinkunn 8,74, hún er því gæðingameistari ársins í barnaflokki.

Í öðru sæti varð Kolbrún Sif Sindradóttir á Sindra frá Keldudal og í því þriðja Þórhildur Lotta Kjartansdóttir á Göldruni frá Hákoti.

Barnaflokkur A-úrslit

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Bjarndís Rut Ragnarsdóttir / Tenór frá Hemlu II 8,74
2 Kolbrún Sif Sindradóttir / Sindri frá Keldudal 8,64
3 Þórhildur Lotta Kjartansdóttir / Göldrun frá Hákoti 8,53
4 Steinunn Lilja Guðnadóttir / Assa frá Þúfu í Landeyjum 8,42
5 Kristín Eir Hauksdóttir Holake / Ísar frá Skáney 8,41
6 Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir / Komma frá Traðarlandi 8,37
7 Friðrik Snær Friðriksson / Dagrenning frá Dallandi 8,36
8 Dagur Sigurðarson / Fold frá Jaðri 6,81

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link