Siggi Sig og Narfi frá Áskoti efstir í B-flokki
Siggi Sig situr Narfa frá Áskoti og hjá honum stendur Jakob S. Þórarinsson ræktandi og eigandi hestsins
A-úrslitum í B-flokki gæðinga hér á Meistaramóti Íslands í gæðingakeppni lauk nú rétt í þessu. Efsti B-flokks gæðingur er Narfi frá Áskoti með 8,83 í einkunn en knapi á honum var Sigurður Sigurðarson.
Tromma frá Höfn varð önnur með 8,76 í einkunn og í því þriðja varð Hending frá Eyjarhólum með 8,72 í einkunn.
A-úrslit B-flokkur
| Keppandi | Heildareinkunn | |
| 1 | Narfi frá Áskoti / Sigurður Sigurðarson | 8,83 |
| 2 | Tromma frá Höfn / Hlynur Guðmundsson | 8,76 |
| 3 | Hending frá Eyjarhólum / Bjarney Jóna Unnsteinsd. | 8,72 |
| 4 | Hrafn frá Breiðholti í Flóa / Sigurbjörn Bárðarson | 8,64 |
| 5 | Nýr Dagur frá Þúfu í Landeyjum / Eygló Arna Guðnadóttir | 8,62 |
| 6 | Heppni frá Þúfu í Landeyjum / Elvar Þormarsson * | 8,52 |
| 7 | Lottó frá Kvistum / Sigvaldi Lárus Guðmundsson | 8,50 |
| 8 | Blær frá Prestsbakka / Elín Árnadóttir | 8,40 |
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV