Gæðingamót á Flúðum – lokaskráning í dag!
Í dag, mánudaginn 20. júní, er síðasti skráningardagur á Gæðingamótið á Flúðum sem fram fer dagana 23.-26. júlí nk. Við minnum á að skráningar eru ekki teknar gildar fyrr en millifærsla/greiðsla skilar sér í hús. Ef þið eruð í vanda með að finna hesthúsapláss fyrir hrossin ykkar, endilega sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við hjálpum ykkur að finna pláss Eins, ef þið lendið í vanda með skráningarnar ykkar sendið okkur mail á netfangið hér að ofan.
Það verður grillveisla á laugardagskvöldinu sem hefst klukkan 18:00. Lambalærisneiðar ásamt meðlæti og pulsur á meðan birgðir endast. Tjaldsvæðið og Hótel Flúðir eru rétt hjá, svo það er hægt að eiga góðar stundir saman með okkur.
Ekki má heldur gleyma þeim veglegu verðlaunum sem verða í boði:
– 100.000kr fyrir fyrsta sæti í Tölti T3 18 ára og eldri og í 100m skeiði
– Fyrir annað sæti í Tölti T3 18 ára og eldri og í 100m skeiði er hálft spónabretti frá Límtré.
Fleiri vegleg verðlaun eru í öllum flokkum.
Látum okkur ekki vanta næstu helgi í Torfdal, Flúðum!
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV