Stórmót Geysis
„Verður haldið 2-3 ágúst á Gaddstaðaflötum við Hellu. Þetta er gæðingakeppni og töltkeppni. Keppt verður i A- og B-flokki gæðinga, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki. Einnig verður boðið uppá tölt og er um þrjá flokka að velja. T3 Opinn flokkur 1, T3 opinn flokkur 2 og svo T3 18.ára og yngri. ´
Skráning fer fram á heimasíðunni hmfgeysir.is undir skráningarhnappnum og er skráningargjald 3500kr á hverja skráningu og greiðist um leið og skráð er. Skráningu lýkur þriðjudaginn 30.júlí kl 23:59. Ef vandræði koma upp við skráningu er hægt að hafa samband í síma 8637130 áður en skráningu lýkur.“ segir í tilkynningu frá nefnd Geysis.