Jafnvígur alhliða gæðingur
Í flokki hrossa sjö vetra og eldri voru sýndir 84 hestar. Efsti hesturinn í ár varð Hrafn frá Efri-Rauðalæk á sýningu í Spretti í vor. Umsögn Þorvaldar um hestinn hljómar svo: „Hrafn er afar fríður, framfallegur og jafnvígur, mjúkur, alhliðahestur, undan Markúsi frá Langholtsparti og Hind frá Vatnsleysu.“ Efstur á Landsmóti í þessum flokki var aftur á móti Ölnir frá Akranesi. Ölnir er einnig út af Markúsi frá Langholtsparti en móðirin, Örk frá Akranesi, er undan Markúsi og faðir Ölnis er Glotti frá Sveinatungu. Ölnir er jafnvígur á allar gangtegundir og einkennist af lipurð og léttleika og hefur eflst mikið á skeiði í seinni tíð. Þriðji hesturinn er svo Kolskeggur frá Kjarnholtum en hann er undan Kvisti frá Skagaströnd og Heru frá Kjarnholtum. Þórálfur frá Prestsbæ hlaut 8,82 fyrir sköpulag en það er hæsta sköpulagseinkunn sem stóð hesti var gefin í ár. Einungis tveir hestar hlutu yfir 9,0 fyrir hæfileika í ár og voru þeir báðir í þessum flokki en það voru þeir Ölnir frá Akranesi með 9,09 og Hrafn frá Efri-Rauðalæk með 9,03.
AE Nafn Faðir Móðir
8.84 Hrafn Efri-Rauðalæk Markús Langholtsparti Hind Vatnsleysu
8.82 Ölnir Akranesi Glotti Sveinatungu Örk Akranesi
8.79 Kolskeggur Kjarnholtum Kvistur Skagaströnd Hera Kjarnholtum I
8.78 Jarl Árbæjarhjáleigu Stáli Kjarri Elding Árbæjarhjáleigu II
8.77 Þórálfur Prestsbæ Álfur Selfossi Þoka Hólum
8.73 Skaginn Skipaskaga Álfur Selfossi Assa Akranesi
8.72 Glaður Prestsbakka Aris Akureyri Gleði Prestsbakka
8.70 Hafsteinn Vakursstöðum Álfasteinn Selfossi Hending Hvolsvelli
8.66 Stekkur Skák Kvistur Skagaströnd Lukka Búlandi
8.65 Álfarinn Syðri-Gegnishólum Keilir Miðsitju Álfadís Selfossi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH