Meistaramót Fákasels og Ljúfs

  • 12. janúar 2015
  • Fréttir
Fjögur opin íþróttamót

„Fákasel og Hestamannafélagið Ljúfur halda fjögur opin íþróttamót í vetur þar sem keppt verður í fimm keppnisgreinum.  Fyrsta mótið verður haldið 8. febrúar en þá verður keppt í fjórgangi.  Mótin eru öllum opin og hefjast kl. 14.00 á sunnudögum og lýkur á úrslitum kl. 17.00.  Keppt verður auk fjórgangs í fimmgangi (22. febrúar), tölti (8. mars) og flugskeiði og T2 (22. mars).

Keppt verður í opnum flokki og yngri flokki (10 – 16 ára á árinu)
Eins og áður segir er mótið öllum opið en tveir verða inná vellinum í einu og þrír dómarar dæma.  Fyrir utan fyrsta mótið eru þau samferða Meistaradeildinni sem einnig eru haldin í Fákaseli, þ.e. fimmgangsmótið er haldið á sunnudegi og fimmgangur í Meistaradeild fer fram fimmtudeginum á eftir, og gæti því reynst fín æfing fyrir knapa og hesta.
Aðstaðan í Fákaseli þarf vart að kynna, enda fer hvergi betur um hesta og menn.

Frekari upplýsingar um skráningu og fyrirkomulag þegar nær dregur.“

Mótanefnd Ljúfs og Fákasel.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link