Hver eru markmiðin?

  • 8. janúar 2021
  • Fréttir

Ekki kasta því frá þér sem þú vilt mest af öllu fyrir eitthvað sem þú vilt núna! Mynd: Aðsend

Pistill frá Hinrik Sigurðssyni

Helló hestafólk og gleðilegt árið.

Ég er að spá hvort við þurfum ekki aðeins að lónsera 2021 áður en við setjumst á bak miðað við hvernig 2020 grýtti okkur öllum sem ætluðum aldeilis að taka alvöru túr á því og svo bara %&/()=&/&%…

En nú með hækkandi sól er alveg heilmikill hugur í manni, og ég finn það úti í greininni að fólk er að njóta hestamennskunnar sem aldrei fyrr, enda bara sennilegt að hesthúsið sé einn öruggasti staðurinn að vera á og svo kemur maður þreyttur og skítugur úr hesthúsinu og engum dettur í hug að reyna að knúsa mann.

Ég sé að námskeiðahald er farið á fullt hjá félögunum, og mikil gróska í því víðast hvar sem er algjörlega frábært, því sem hestamenn er það eitthvað það albesta sem við getum gert fyrir hestana okkar, að leitast við að verða leiknari knapar og betri hestamenn sem skilja þessa frábæru skepnu aðeins betur.

En efni pistilsins í dag er á svipuðum nótum og ég hef imprað á áður, og það er um markmið. Í dag er 8. janúar, geggjaður dagur þar sem nafnarnir Aron sonur minn, yfirtöffari og Elvis eiga afmæli, en samkvæmt mælingum eru ennþá þrír dagar í að meginþorri fólks sem strengir áramótaheit fellur á þeim en það gerist í flestum tilfellum þann 11. janúar.

Ástæðan er oftast einföld, markmiðin sem maður setur sér eru of stór (eins kjánalegt og það hljómar) og eignlega alltaf of óskýr.

Lesið endilega eldri pistil þar sem ég svara Guðjóni nokkrum um það að setja sér markmið og ná þeim, því þar eru góðar upplýsingar, en það sem ég vill bæta við þetta eru nokkrir góðir punktar þegar þið eruð að fara af stað í þetta nýja ár og allir eru pepp:

Það er gott að nýta sér SMART módelið við að setja upp markmið:

Skýrt
Mælanlegt
Aðlaðandi
Raunhæft
Tímasett

Skýrt (Hvað viltu gera? Tengdu það við tilfinningu, hvað þýðir það fyrir þig að ná þessu?)

Mælanlegt (Hafðu það þannig að þú getir mælt árangurinn og séð hann svart á hvítu)

Aðlaðandi (Finndu að þú virkilega viljir ná því , og í hóp að það ríki almenn samstaða um það)

Raunhæft (Gott markmið þarf að kitla taugarnar en of háleitt markmið er hætta á að maður gefist upp)

Tímasett (Hafðu skýran tímaramma, ”Næsta gamlársdag hleyp ég 10 km á 50 mín”)

Þetta er geggjuð leið til þess að halda markmiðum ársins og ná þeim. Ég læt mynd fljóta með sem mér þykir alltaf frekar vænt um, og minni mig á textann þegar mig langar að leggja á skeið en veit að ég ætti að vinna í öðru 🙂

All the best Hinni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link