Kynning á gæðingafimi LH og prufumót
Á síðasta landsþingi LH var samþykkt að notast verði við reglur um gæðingafimi unnar af starfshópi LH um gæðingafimi til reynslu fram að landsþingi 2022. Einnig var mælst til þess að keppt verði í greininni á Íslandsmóti og þær mótaraðir sem hafa gæðingafimi sem keppnisgrein noti reglurnar á næsta keppnisári.
Við hvetjum forsvarsmenn mótaraða, hestamannafélaganna ásamt hinum almenna hestamanni til að kynna sér reglur gæðingafimi LH næstkomandi laugardag.
Kynningin hefst kl 11:00 og keppnin kl 12:30 og er opin öllum á faceboosíðu Alendis og LH
https://www.facebook.com/events/2741538229442233
Vonandi komast sem flestir til að kynna sér gæðingafimina og sjá vonandi tækifæri á því að bjóða sínum félagsmönnum upp á mót í greininni
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH