Gunnar í Fagráð
Á aðalfundi Félags tamningamanna sl. föstudag var Gunnar Arnarsson kjörinn til að sitja í Fagráði í hrossarækt fyrir hönd félagsins næstu þrjú árin.
Fram til þessa hefur formaður FT setið í Fagráði, nú verður breyting þar á. Kosið var á milli þeirra Sigrúnar Ólafsdóttur formanns FT og Gunnars Arnarsonar, þar hafði Gunnar betur. Stjórn FT var í framhaldinu falið að tilnefna Gunnar sem fulltrúa félagsins í Fagráð.
Gunnar hefur í opinberri umræðu haft skoðun á störfum Fagráðs, á köflum deilt hart á störf þess.
Það má telja líklegt að fengur sé að Gunnari til verka í Fagráði, hann hefur náð frábærum árangri sem hrossarætandi á undanförnum árum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH