Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Ríkharður sigurvegari Equsanadeildarinnar

  • 27. mars 2022
  • Fréttir
Lið Heimahaga vann liðakeppnina í Áhugamannadeild Equsana

Áhugamannadeild Equsana og Spretts lauk í dag en síðasta greinin var gæðingaskeið og var mótið haldið í Hafnarfirði. Hægt er að sjá niðurstöður gæðingaskeiðsins HÉR

Einstaklingskeppnin var æsi spennandi í deildinni og mikið var undir fyrir síðustu greinina en mjótt var á munum milli efstu knapa. Leikar fóru þannig að Ríkharður Flemming Jensen úr liði Heimahaga varð stigahæsti knapi deildarinnar með 33 stig en hann var einnig stigahæsti knapi deildarinnar í fyrra. Katrín Sigurðardóttir endaði önnur með 30 stig og Vilborg Smáradóttir var þriðja með 28 stig.

Efstu þrír í einstaklingakeppninni í Áhugamannadeild Equsana 2022

 

Lið Heimahaga var stigahæsta lið deildarinnar en þetta er þriðja árið í röð sem liðið endar efst og fjórða skiptið sem liðið vinnur (2018, 2020, 2021 og 2022). Liðið náði forustu eftir fyrstu grein og hélt henni í gegnum alla mótaröðina.

Lið Heimahaga vann liðakeppnina 2022

 

Það er siður í Áhugamannadeildinni að velja vinsælasta knapann, þjálfara ársins og vinsælasta liðið.

Auður Stefánsdóttir í liði Vagna og þjónustu var valin vinsælasti knapinn.

 

Kári Steinsson var valinn þjálfari ársins en hann er þjálfari liðs Vagna og þjónustu.

 

Lið Kidka var valið vinsælasta liðið.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link