Sigurður Rúnar sigraði B-úrslitin
Sigurður Rúnar Pálsson sigraði B úrslitin í ungmennaflokki en hann var á Reyni frá Flugumýri og hlutu þeir 8,42 í einkunn.
Í öðru sæti var Laufey Rún Sveinsdóttir á Ótta frá Ólafsfirði með 8,35 í einkunn og í þriðja sæti var Harpa Birgisdóttir á Kötlu frá Kornsá með 8,23 í einkunn.
- Sigurður Rúnar Pálsson / Reynir frá Flugumýri 8,42
- Laufey Rún Sveinsdóttir / Ótti frá Ólafsfirði 8,35
- Harpa Birgisdóttir / Katla frá Kornsá 8,23
- Þórdís Fjeldsteð / Snjólfur frá Eskiholti 8,22
- Ágústa Rut Haraldsdóttir / Blævar frá Svalbarða 8,22
- Hrefna Rós Lárusdóttir / Hnokki frá Reykhólum 8,19
- Jóhannes Geir Gunnarsson / Nepja frá Efri-Fitjum 8,13
- Berglind Ýr Ingvarsdóttir / Segull frá Sveinatungu 8,09