Þjálfunarparadís fyrir hesta
Ingimar Baldvinsson réðst ekki á garðinn þar sem hann var lægstur þegar hann ákvað að byggja sjúkra- og þrekþjálfunarstöð fyrir hross að Hólaborg í Flóa. Framkvæmdir voru hafnar þegar hrunið reið yfir en þá var of seint að snúa við, sem betur fer segja áreiðanlega margir eigendur og forráðamenn hrossa, sem senda sumir gripi sína nokkrum sinnum á ári á stöðina.
Stöðin var formlega opnuð í janúar árið 2009. Reksturinn hefur gengið vonum framar að sögn Ingimars og framhaldið lofar góðu. Hann segist aldrei hafa kviðið því að eftirspurnin yrði ekki næg. „Ég var svo sannfærður um gildi þessarar þjálfunar og hvað hún gæti gert fyrir hrossið að ég óttaðist það aldrei,“ segir hann. „Enda er það komið á daginn að ég á orðið fastan kjarna viðskiptavina sem koma aftur og aftur. Í haust þurfti ég, annað árið í röð, að hefja starfsemina fyrr en ég ætlaði mér. Þann tíma ársins ætlaði ég að nota til frumtamninga en vatnsþjálfunin hófst strax í byrjun október, því þá vildu menn fara að mýkja hross sín upp.“
Flestir dagar vikunnar ganga þannig fyrir sig á Hólaborg að hesturinn fer fyrst í hringekjuna, síðan í vatnið og loks á „víbra-gólfið.“ Eftir það fer hesturinn í heitan blástur. Á miðvikudögum eru öll hross á stöðinni einungis þjálfuð á feti, því þá eru hvíldardagar til að byggja þau upp fyrir áframhaldandi þjálfun. Á sunnudögum er svo algjör hvíld. Hrossunum er gefið gott hey, ekki of sterkt, til að hægt sé að gefa þeim meira meðan á dvölinni stendur, auk matarolíu og lýsis. Kjarnfóður er gefið í samráði við eigendur. Spurður um hvort þessi þjálfunaraðferð hafi einhver merkjanleg áhrif á sálarlíf hrossanna segir Ingimar það ekki fara á milli mála. „Þetta hefur gríðarleg áhrif. Spenntur hestur slakar á. Frekur hestur verður að hlýða í hringekjunni. Þetta er ögun. Sum eru á því að fara ekki ofan í vatnið, hvað sem tautar og raular. Þetta er sjaldnast hræðsla, heldur frekja. Eftir örfá skipti virðast þau vera farin að hafa verulega gaman af þessu. Fólk hefur oft haft orð á því við mig að hesturinn komi svo ferskur og glaður til baka. Ég held að skýringin sé meðal annars sú að það er alltaf eitthvað að gerast. Fyrst fer hann í hringekjuna, þaðan út í gerði, svo í vatnið og hitablásturinn. Þetta tekur á þriðja klukkutíma sem dreifist yfir daginn, samanborið við hálftíma til fjörutíu mínútna reið á húsi.“
Margur þekktur gæðingurinn hefur komið við í Hólaborg, þar af sumir nokkrum sinnum. Nefna má Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu, Sigur frá Hólabaki, Feyki frá Háholti, Lúpu frá Kílhrauni, Óm og Ketil frá Kvistum, Sveig frá Varmadal, Héðin frá Feti, Náttfara frá Dallandi, Glym frá Flekkudal, Víði frá Prestsbakka og alla A-hestana frá Lundum, þá Auð, Al og Asa. Ingimar segir að bónusinn til viðbótar við að sjá hrossin eflast, styrkjast og gleðjast í þjálfuninni sé þegar forráðamenn þeirra eða eigendur hringi og lýsi ánægju sinni með breytinguna sem á þeim sé orðin eftir að hafa fengið þau aftur í hendur.
Í 7. tbl. Eiðfaxa segir Ingimar í fróðlegu spjalli við Jóhönnu Sigþórsdóttur frá starfsemi stöðvarinnar og ýmsu sem hefur komið honum á óvart á þeim tæplega þremur árum sem hún hefur verið starfrækt.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Tamdi tugi villihesta einn
Opið er fyrir umsóknir í Hæfileikamótun LH 2026-2027