Töltmeistarinn Ljúfur frá Torfunesi tekur á móti hryssum á Kirkjubæ á Rangárvöllum

  • 28. júlí 2022
  • Fréttir
Notkunarupplýsingar stóðhesta

Ljúf þarf vart að kynna enda ríkjandi Landsmóts og Íslandsmeistari í tölti og skartar einnig 10 fyrir tölt í kynbótadómi.

Hann er Landsmótssigurvegari í tölti 2018 og 2022. Íslandsmeistari í tölti 2021 og 2022. Hæsta einkunn í forkeppni í tölti er 9.20 og hæsta einkunn í úrslitum er 9.44. Ljúfur er frábær gæðingur og höfðingi, viljugur og einstaklega þjáll. Hann hefur trausta lund og er stórbrotinn karakter.

Gangtegundirnar eru allar gæðagóðar og er hann sjálfberandi og léttur í reið enda hefur hann sterka yfirlínu.
Báðir foreldrar Ljúfs hafa sigrað Landsmót, faðir hans Grunur frá Oddhóli sigraði tölt á LM2006 og móðir hans Tara frá Lækjarbotnum sigraði barnaflokk á LM2002. Jafnframt er Grunur með 1v fyrir afkvæmi og Tara er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Tryppin undan Ljúf eru mjög lofandi og mörg erfa hans sterku yfirlínu og yfirveguðu lund.

Gæðingshryssan Fold frá Hrafnshóli dóttir Ljúfs var sýnd í vor 5v gömul og hlaut 8.33 hæfileika þar af 9 fyrir tölt, vilja og hægt tölt.

Verð: 200þús (innifalið er folatollur, girðingargjald, 1 sónar og vsk)
Upplýsingar gefur Hjörvar Ágústsson 8480625

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link