Hæstu einkunnir ársins í gæðingaskeiði

  • 23. október 2022
  • Fréttir

Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum eru efst á stöðulistanum í gæðingaskeiði. Mynd: Óla myndir

Keppnisárið 2022

Nú þegar keppnistímabilinu hér á landi er lokið er ráð að taka saman 10 hæstu einkunnir ársins í hverri keppnisgrein og aldursflokki og er þá miðað við einkunn í forkeppni. Það er hæsta einkunn hjá hverju pari sem gildir en notast er við stöðulista úr Sportfeng. Við byrjum á því að taka fyrir hæstu einkunnir ársins í gæðingaskeiði PP1.

Hæstu einkunn ársins í opnum flokki á Elvar Þormarsson á Fjalladís frá Fornusöndum en þau hlutu hvorki meira né minna en 8,88 í einkunn á Íslandsmótinu en þau eru ríkjandi Íslandsmeistarar og Landsmótssigurvegarar í greininni.

Benedikt Ólafsson og Leira-Björk frá Naustum eiga hæstu einkunn ársins í þessari grein í ungmennaflokki en þau hlutu 7,63 í einkunn, þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þetta par er efst á þessum lista í yngri flokkunum en þau stóðu efst í unglingaflokki 2020 og 2021.

Í unglingaflokki eru það Jón Ársæll Bergmann og Valka frá Íbishóli sem eru með hæstu einkunn ársins eða 7,25 í einkunn.

Birt með fyrirvara um að öll mót hafi skilað sér inn til SportFengs.

Gæðingaskeið PP1 – Fullorðinsflokkur

Nr. Knapi Hross Einkunn
1 Elvar Þormarsson Fjalladís frá Fornusöndum 8,88
2 Jakob Svavar Sigurðsson  Ernir frá Efri-Hrepp 8,50
3 Guðmar Freyr Magnússon Brimar frá Varmadal 8,50
4 Árni Björn Pálsson Álfamær frá Prestsbæ 8,42
5 Auðunn Kristjánsson Penni frá Eystra-Fróðholti 8,25
6 Páll Bragi Hólmarsson Vörður frá Hafnarfirði 8,17
7 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum 8,13
8 Davíð Jónsson Irpa frá Borgarnesi 8,00
9 Sigurður Vignir Matthíasson Léttir frá Eiríksstöðum 7,92
10 Klara Sveinbjörnsdóttir Glettir frá Þorkelshóli 2 7,88

Gæðingaskeið PP1 – Ungmennaflokkur

# Knapi Hross Einkunn
1 Benedikt Ólafsson Leira-Björk frá Naustum III 7.63
2 Matthías Sigurðsson Tign frá Fornusöndum 7.13
3 Arnar Máni Sigurjónsson Heiða frá Skák 7.08
4 Kristján Árni Birgisson Máney frá Kanastöðum 7.04
5 Þorvaldur Logi Einarsson Skíma frá Syðra-Langholti 4 6.88
6 Embla Þórey Elvarsdóttir Tinni frá Laxdalshofi 6.83
7 Þórey Þula Helgadóttir Sólon frá Völlum 6.83
8 Herdís Björg Jóhannsdóttir Snædís frá Forsæti II 6.67
9 Védís Huld Sigurðardóttir Hrafnhetta frá Hvannstóði 6.58
10 Arnar Máni Sigurjónsson Frekja frá Dýrfinnustöðum 6.50

Gæðingaskeið PP1 – Unglingaflokkur

# Knapi Hross Einkunn
1 Jón Ársæll Bergmann Valka frá Íbishóli 7.25
2 Herdís Björg Jóhannsdóttir Snædís frá Forsæti II 7.21
3 Matthías Sigurðsson Tign frá Fornusöndum 7.08
4 Dagur Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 6.54
5 Sara Dís Snorradóttir Djarfur frá Litla-Hofi 6.33
6 Þórgunnur Þórarinsdóttir Gullbrá frá Lóni 6.13
7 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Bragi frá Skáney 5.88
8 Sigurbjörg Helgadóttir Hörpurós frá Helgatúni 5.38
9 Eva Kærnested Hvanndal frá Oddhóli 5.33
10 Elín Þórdís Pálsdóttir Vörður frá Hafnarfirði 5.13

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link