Heimsmeistarinn Finnbogi allur
Finnbogi frá Minni-Reykjum er fallinn og það langt fyrir aldur fram en hann var einungis 12 vetra. Hann lést vegna þarmasjúkdóms. Sorgarfréttir fyrir Íslands hestaheiminn.
Finnbogi var undan Stormi frá Herríðarhóli og Fönn frá Minni-Reykjum en það var Egill Þórarinsson sem ræktaði hestinn. Jóhann R. Skúlason og Finnbogi urðu þrefaldir heimsmeistarar á síðasta Heimsmeistaramóti, í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum. Þeir Jóhann og Finnbogi áttu farsælan feril sem endaði með þremur heimsmeistaratitlum en Tine Terkildsen keypti hestinn árið 2021.
Eiðfaxi sendir aðstandendum Finnboga samúðarkveðjur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH