Teitur Íslandsmeistari í 100 m. skeiði fullorðna
Teitur Árnason og Drottning frá Hömrum II fóru fyrsta sprettinn á 7,19 sek. og sá tími dugði þeim til að landa Íslandsmeistaratitil enda frábær tími. Hörku aðstæður voru á Selfossi bæði í gær í kappreiðunum og í dag í 100 m. skeiðinu og náðust frábærir tímar.
Annar varð Ingibergu Árnason á Sólveigu frá Kirkjubæ með tímann 7,25 sek. og þriðji Þorgeir Ólafsson á Hátíð frá Sumarliðabæ 2 með tímann 7,31 sek.
Niðurstöður:
Flugskeið 100m P2 – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Tími
1 Teitur Árnason Drottning frá Hömrum II 7,19
2 Ingibergur Árnason Sólveig frá Kirkjubæ 7,25
3 Þorgeir Ólafsson Hátíð frá Sumarliðabæ 2 7,31
4 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 7,32
5 Hans Þór Hilmarsson Jarl frá Þóroddsstöðum 7,36
6 Mette Mannseth Vívaldi frá Torfunesi 7,39
7 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 7,44
8 Guðmar Þór Pétursson Friðsemd frá Kópavogi 7,47
9 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 7,49
10 Klara Sveinbjörnsdóttir Glettir frá Þorkelshóli 2 7,50
11 Erlendur Ari Óskarsson Dama frá Hekluflötum 7,51
12 Sigurður Heiðar Birgisson Hrina frá Hólum 7,55
13 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Straumur frá Hríshóli 1 7,60
14-15 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi 7,61
14-15 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bríet frá Austurkoti 7,61
16 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 7,62
17-18 Konráð Valur Sveinsson Tangó frá Litla-Garði 7,64
17-18 Þórarinn Ragnarsson Freyr frá Hraunbæ 7,64
19 Ísólfur Ólafsson Ögrunn frá Leirulæk 7,65
20 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási 7,72
21 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum 7,85
22 Hjörvar Ágústsson Orka frá Kjarri 7,87
23 Daníel Gunnarsson Eining frá Einhamri 2 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH