Æðruleysi í öskufalli
Hestafólk og hrossabændur á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni tekur lífinu með æðruleysi, þrátt fyrir að ekki sjáist handa á milli um hábjartan daginn. Gísli Kjartansson á Geirlandi á Síðu sagði laust eftir hádegið í dag að ekki sæist á milli húsa á hlaðinu. Ekkert væri hægt að gera utan dyra fyrir myrkri. Folald sem kom í heiminn í morgun er þó sprækt.
„Ég vissi nákvæmlega hvar hrossin voru og gat þreifað mig áfram eftir kennileitum. Ein hryssan var köstuð og folaldið var mjög sprækt. Mín hross eru öll komin á hús, þar á meðal folaldsmerin og henni og folaldinu heilsast vel. Ég hygg að víðast hvar hér um slóðir séu flest hross á húsi, það er ekki mikið um að menn séu með það mörg hross. En þetta er náttúrulega ömurlegt. Askan smýgur inn um allt. Öll hús eru full af öskuryki. Maður situr hér í eldhúsinu í kolniða myrkri og getur ekkert annað en vonað að þessu ljúki sem fyrst,“ segir Gísli.
Kristín Lárusdóttir á Syðri-Fljótum í Landbroti hefur svipaða sögu að segja. Þar var niðamyrkur í morgun en um tvö leytið rofaði heldur til. „Það er svona 1000 metra skyggni núna, en það getur breyst, bæði til hins betra og verra. Fjölskyldan er inni við og tekur því rólega, enda ekkert annað hægt að gera. Tamningahrossin eru inni en útigangurinn er úti við og hefur aðgang að heyi og vatni. Við erum með 400 fjár og allar ærnar voru bornar og komnar út þegar gosið hófst. Það er ekki nokkur leið að taka það á hús aftur við þessar aðstæður, þótt við höfum húspláss fyrir það í reiðhöllinni. En þetta hlýtur að taka endi bráðlega,“ segir Kristín Lárusdóttir.
Anna Harðardóttir og Sigurður Kristinsson á Hörgslandi voru svo óheppin að missa folald í skurð í gær. Fullorðin hryssa gekk í sama skurð og var hætt komin. Skyggni var ekkert. „Það var niðamyrkur í gær og er þannig í dag líka. Við þurfum að þreifa okkur meðfram girðingu í fjárhúsin. Folaldið sem drapst var undan Mjölni frá Hlemmiskeiði, rauðstjörnótt hryssa. Við misstum folald undan sömu hryssu og Mjölni í fyrra. Skaðinn er sárari fyrir vikið,“ segir Anna. „Það var svo dimmt í gær að hrossin hafa ekki séð neitt. Eldri hryssan sem fór í skurðinn er rétt óköstuð. Hún var orðin nokkuð köld en er að hressast.“
Anna og Sigurður eru með 500 fjár og nokkra tugi hrossa. Allmargar ær með lömbum voru komnar út þegar gosið hófst. Útigangshrossin láta öskuna ekkert á sig fá. Þau hafa aðgang að fersku vatni og heyi og láta eins og ekkert hafi í skorist.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH