Áminning um smitvarnir
Í tilkynningu frá Matvælastofnun eru hestamenn minntir á að gæta vel að smitvörnum við utanferðir:
„Í kjölfar faraldurs smitandi hósta í íslenska hrossastofninum var skerpt á reglum um smitvarnir og m.a. komið upp móttöku á óhreinum reiðfatnaði og –skóm í rauða hliðinu í Leifsstöð. Fatahreinsunin Fönn tekur við fatnaðinum hjá tollvörðum, sótthreinsar eftir fyrirmælum Matvælastofnunar og sendir til eigenda.
Góð reynsla er komin á þetta fyrirkomulag en athygli vekur að nýting af hálfu atvinnureiðmanna og reiðkennara er minni en reiknað hafði verið með.
Bannað er að koma með óhreinan reiðfatnað og -skó til landsins sem og annan fatnað sem gæti borið með sér smitefni úr hrossum erlendis. Gæta þarf sérstaklega að yfirhöfnum og skóm í því sambandi. Reiðhanskar eru í sérstökum áhættuflokki og því er bannað með öllu að koma með notaða reiðhanska til landsins. Innflutningur á notuðum reiðtygjum, þ.m.t. mélum, sem og öðrum búnaði sem notaður er í hestamennsku er óheimill.
Reiðkennarar, knapar og aðrir sem koma að hestamennsku erlendis – og eru oft í nokkurri tímaþröng á ferðum sínum – eru sérstaklega hvattir til að nýta sér þjónustu Fatahreinsunarinnar Fannar á Keflavíkurflugvelli enda er það ein öruggasta leiðin til að hindra að óhreinn fatnaður beri smit í umhverfi hesta hér á landi. Að öðrum kosti þarf að vera búið að þvo fatnaðinn í þvottavél og þurrka fyrir komuna til landsins. Skófatnað og stígvél þarf auk sápuþvottar að úða með virkoni eða öðru sambærilegu sótthreinsandi efni og þurrka fyrir komuna til landsins.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH