Landsmót 2024 Aragrúi gæðinga í B-flokki

  • 23. júní 2024
  • Fréttir

Kór frá Skálakoti og Jakob Svavar Sigursson Ljósmynd: Dóra Gylfadóttir

Kór frá Skálakoti sem sýndur er af Jakobi Svavari Sigurðssyni efstur á stöðulista

Landsmót Hestamanna er framundan í Víðidal í Reykjavík dagana 1.-7. júlí. Að loknum úrtökum hestamannafélaga er gaman að velta fyrir því sér hvernig staðan er á stöðulistum fyrir mótið en ljóst er að mikið gæðingaval verður á mótinu.

Í B-flokki skal gæðingurinn njóta sín og sýna þarf fet, stökk, hægt tölt, brokk og greitt tölt. Einkunnir fyrir vilja og fegurð í reið eru gefnar og gilda þær tvöfald. Í sérstakri forkeppni er sýnt hægt tölt, brokk og greitt tölt.

Efstur á stöðulista að loknum úrtöku mótum er Kór frá Skálakoti með 8,89 í einkunn sýndur af Jakobi Svavari Sigurðssyni. Annar er Adrían frá Garðshorni á Þelamörk með 8.80 í einkunn sýndur af Guðmundur Björgvinssyni og í því þriðja er Vala frá Hjarðartúni með 8,77 sýnd af Arnhildi Helgadóttur.

30 efstu hestar á stöðulista í B-flokki fyrir Landsmót*

  Knapi Hross Einkunn
1. Jakob Svavar Sigurðsson IS2017184162 Kór frá Skálakoti 8,89
2. Guðmundur Björgvinsson IS2013164067 Adrían frá Garðshorni á Þelamörk 8,80
3. Arnhildur Helgadóttir IS2016284870 Vala frá Hjarðartúni 8,77
4. Vilborg Smáradóttir IS2013157651 Sigur frá Stóra-Vatnsskarði 8,73
5. Bjarni Jónasson IS2016257591 Dís frá Ytra-Vallholti 8,73
6. Olil Amble IS2011187660 Álfgrímur frá Syðri-Gegnishólum 8,73
7. Helgi Þór Guðjónsson IS2014187695 Þröstur frá Kolsholti 2 8,73
8. Elvar Þormarsson IS2015184975 Pensill frá Hvolsvelli 8,73
9. Jóhanna Margrét Snorradóttir IS2014187804 Útherji frá Blesastöðum 1A 8,71
10. Siguroddur Pétursson IS2014237860 Sól frá Söðulsholti 8,71
11. Flosi Ólafsson IS2016180713 Logi frá Valstrýtu 8,70
12. Benjamín Sandur Ingólfsson IS2017187460 Áki frá Hurðarbaki 8,70
13. Bylgja Gauksdóttir IS2016125400 Goði frá Garðabæ 8,70
14. Barbara Wenzl IS2015201232 Gola frá Tvennu 8,70
15. Valdís Björk Guðmundsdóttir IS2015236520 Lind frá Svignaskarði 8,70
16. Sigurður Vignir Matthíasson IS2013125469 Safír frá Mosfellsbæ 8,69
17. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir IS2014181422 Flaumur frá Fákshólum 8,68
18. Snæbjörg Guðmundsdóttir IS2015277185 Dís frá Bjarnanesi 8,68
19. Sara Sigurbjörnsdóttir IS2016180376 Skálkur frá Koltursey 8,68
20. Sigurður Sigurðarson IS2008188560 Kolskeggur frá Kjarnholtum I 8,67
21. Elvar Þormarsson IS2015288097 Ísabella frá Stangarlæk 1 8,67
22. Mette Mannseth IS2017258160 Klukka frá Þúfum 8,67
23. Hans Þór Hilmarsson IS2014282577 Ísey frá Ragnheiðarstöðum 8,65
24. Sigurður Sigurðarson IS2011281838 Rauða-List frá Þjóðólfshaga 1 8,64
25. Lea Schell IS2013286294 Pandra frá Kaldbak 8,64
26. Barbara Wenzl IS2015258096 Spenna frá Bæ 8,63
27. Ævar Örn Guðjónsson IS2014188690 Haukur frá Efri-Brú 8,63
28. Sindri Sigurðsson IS2017184997 Höfðingi frá Miðhúsum 8,63
29. Þórarinn Ragnarsson IS2015287115 Hringadróttinssaga frá Vesturkoti 8,62
30. Vera Evi Schneiderchen IS2013182712 Feykir frá Selfossi 8,62
31. Ólafur Ásgeirsson IS2011187647 Fengsæll frá Jórvík 8,62
32. Elvar Þormarsson IS2017284174 Freyja frá Fornusöndum 8,62
33. Helga Una Björnsdóttir IS2013155908 Brynjar frá Syðri-Völlum 8,62

Sérstök forkeppni í B-flokki er áætluð mánudaginn 1.júlí og milliriðlar fimmtudaginn 4.júlí. Sigurvegari verður svo krýndur á úrslitadegi Landsmót þann 7.júlí.

Engum hesti hefur tekist að vinna B-flokk á Landsmóti tvisvar en sigursælasti knapi B-flokks er Sigurður Sigurðarson en hann hefur unnið þann flokk þrisvar sinnum á þeim Kringlu frá Kringlumýri, Kjarnorku frá Kálfholti og Loka frá Selfossi.

Sigurvegarar B-flokks á Landsmóti. Fengið af vef LH.

B-flokkur 

2022 – Ljósvaki frá Valstrýtu 9,21, knapi Árni Björn Pálsson
2018 – Frami frá Ketilsstöðum 9,14, knapi Elin Holst
2016 – Nökkvi frá Syðra-Skörðugili 9,21, knapi Jakob Svavar Sigurðsson
2014 – Loki frá Selfossi 9,39, knapi Sigurður Sigurðarson
2012 – Glóðafeykir frá Halakoti 9,00, knapi Einar Öder Magnússon
2011 –  Kjarnorka frá Kálfholti 9,19, knapi Sigurður Sigurðsson
2008 – Röðull frá Kálfholti 9,15, knapi Ísleifur Jónasson
2006 – Hlýr frá Vatnsleysu 8,95, knapi Snorri Dal
2004 – Rökkvi frá Hárlaugsstöðum, knapi Þorvaldur Árni Þorvaldsson
2002 – Kjarkur frá Egilsstöðum 9,03, knapi Sigurður V. Matthíasson
2000 – Markús frá Langholtsparti 9,27, knapi Sigurbjörn Bárðarson
1998 – Kringla frá Kringlumýri 8,96, knapi Sigurður Sigurðarson
1994 – Orri frá Þúfu 8,91, knapi Gunnar Arnarson
1990 – Dimma frá Gunnarsholti 8,92, knapi Rúna Einarsdóttir
1986 – Kristall frá Kolkuósi 8,69, knapi Gylfi Gunnarsson
1982 – Hrímnir frá Hrafnagili 8,86, knapi Björn Sveinsson
1978 – Hlynur frá Akureyri 9,16, knapi Eyjólfur Ísólfsson
1974 – Gammur frá Hofsstöðum 9,12, knapi Magnús Jóhannsson
1970 – Gráni frá Auðsstöðum 8,20, knapi

 

*Miðað við stöðulista fimmtudaginn 20.júni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link