Barist til þrautar í Meistaradeild KS
Lið Storm Rider sigraði í liðakeppni síðasta árs
Lokamót Meistaradeildar KS fer fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki annað kvöld, föstudaginn 17, aprí, hefst keppni klukkan 18:00. Fóðurblandan býður áhorfendum frítt í sal og mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Barátta á toppnum í heildarstigakeppni
Keppt er bæði í tölti og flugskeiði í gegnum höllina og sé tekið mið af ráslista verður sú keppni spennandi og það sama má segja um einstaklings- og liðakeppni þar sem mjótt er á munum. Í einstaklingskeppni leiðir Vera Evi Schneiderchen með 30 stig en skammt á eftir henni er Mette Mannseth með 27 stig. Í þriðja sætinu er svo Þórarinn Eymundsson með 21 stig. Mörg stig eru í boði og því gætu aðrir knapar sem neðar eru blandað sér í toppbaráttu ef þessum knöpum tekst ekki að ná sér í stig. Í liðakeppninni er baráttan um sigur á milli liðs Þúfna, sem leiðir með 318 stig og lið Hrímnis/Hestkletts sem er í öðru sæti 8 stigum á eftir Þúfum með 310 stig. Það verður áhugavert að sjá hvernig til tekst hjá liðsmönnum þessara liða að næla í mikilvæg stig.
Staðan í liðakeppni
- Þúfur 318 stig
- Hrímnir/Hestklettur 310 stig
- Hofstorfan/550 266,5 stig
- Lífland 323 stig
- íbishóll 186,5
- Storm Rider 168,5 stig
- Bústólpi 151,5 stig
- Uppsteypa 151 stig
- Exar 144,5 stig
Staðan í einstaklingskeppni – 10 efstu
- Vera Evi Schneiderchen 30 stig
- Mette Mannseth 27 stig
- Þórarinn Eymundsson 21 stig
- Þórey Þula Helgadóttir 20 stig
- Barbara Wenzl 18 stig
- Guðmar Freyr Magnússon 18 stig
- Herdís Björg Jóhannsdóttir 14 stig
- Lilja Dögg Ágústsdóttir 13 stig
- Agnar Þór Magnússon 13 stig
- Kristján Árni Birgisson 12,5 stig
Í töltkeppni síðasta árs í Meistaradeild KS voru það þau Mette Mannseth og Þórarinn Eymundsson sem voru í fyrsta og öðru sæti. Metta sigraði þá á Hannibal frá Þúfum með 7,94 í einkunn og Þórarinn varð annar á Náttfara frá Varmalæk með 7,72. Metta mætir nú á öðrum hesti úr eigin ræktun, Grímari frá Þúfum, en Þórarinn er á Náttfara. Af öðrum knöpum sem voru í A-úrslitum í fyrra er enginn þeirra á meðal þátttakenda nú. Elvar Einarsson er skráður á Muna frá Syðra-Skörðugili en þeir unnu B-úrslitin árið 2025 með 7,39. Vera er skráð á hesti sínum Feyki frá Selfossi sem hefur skilað henni mörgum stigum og meðal annars sigri í fjórgangi. Auk undantalinna knapa eru margir flottir tölthestar skráðir til leiks sem hafa eða gætu gert það gott í töltkeppni. Alls er það 28 pör sem keppa í töltkeppni þar af eru tveir Villikettir, fyrir lið Exar og Líflands, auk uppboðsknapa sem er Unnur Sigurpálsdóttir á Þresti frá Kolsholti II.
Ráslisti í tölti
| Knapi | Hestur | Lið |
| Elvar Logi Friðriksson | Teningur frá Víðivöllum fremri | Uppsteypa |
| Sigurður Steingrímsson | Rún frá Koltursey | Exar |
| Þórarinn Eymundsson | Náttfari frá Varmalæk | Hrímnir /Hestklettur |
| Egill Már Þórsson | Blæja frá Króksstöðum | Bústólpi |
| Mette Mannseth | Grímar frá Þúfum | Þúfur |
| Kristófer Darri Sigurðsson | Ósk frá Narfastöðum | Hofstorfan /550 |
| Agnar Þór Magnússon | Birta frá Íbishóli | Íbishóll |
| Ívar Örn Guðjónsson | Dofri frá Sauðárkróki | StormRider |
| Erlingur Ingvarsson | Dimmalimm frá Hrísaskógum | Lífland |
| Vera Evi Schneiderchen | Feykir frá Selfossi | Hrímnir /Hestklettur |
| Elvar Einarsson | Muni frá Syðra-Skörðugili | StormRider |
| Björg Ingólfsdóttir | Hákon frá Vatnsleysu | Lífland |
| Björgvin Helgason | Kóngur frá Gunnarsstöðum | Bústólpi |
| Sigurður Heiðar Birgisson | Fagri frá Skeiðvöllum | Íbishóll |
| Guðrún Lilja Rúnarsdóttir | Kolgríma frá Morastöðum | Exar |
| Þórey Þula Helgadóttir | Hrafna frá Hvammi I | Hofstorfan /550 |
| Herdís Björg Jóhannsdóttir | Svörður frá Vöðlum | Uppsteypa |
| Barbara Wenzl | Loftur frá Kálfsstöðum | Þúfur |
| Matthías Sigurðsson | Tumi frá Jarðbrú | Hrímnir /Hestklettur |
| Karítas G. Thoroddsen | Tenór frá Miðhúsum | Bústólpi |
| Þorsteinn Björn Einarsson | Hringaná frá Hofi á Höfðaströnd | Hofstorfan /550 |
| Villiköttur | Exar | |
| Guðmar Freyr Magnússon | Snerpa frá Hólmum | Þúfur |
| Magnús Bragi Magnússon | Jósteinn frá Íbishóli | Íbishóll |
| Uppboðssæti-Unnur Sigurpálsdóttir | Þröstur frá Kolsholti 2 | |
| Þorsteinn Björnsson | Ugla frá Hólum | Uppsteypa |
| Villiköttur | Lífland | |
| Julian Veith | Fáni frá Sperðli | StormRider |
Skeiðkeppni
Í skeiðinu getur svo allt gerst en óhætt er að segja að Konráð Valur á Kastori frá Garðshorni sé sigurstranglegastur, vann þessa grein m.a. í fyrra. Þórgunnur Þórarinsdóttir varð í þriðja sæti í þessari keppni í fyrra á Sviðri frá Reykjavík en nú keppir á honum Kristján Árni Birgisson. Þá eru fljótir skeiðhestar sem náð hafa góðum árangir á landsvísu skráðir til leika líkt og Tvistur frá Garðshorni, sem náði besta tíma ársins í 100 metra skeiði á síðast ári settan hér á landi, þá með Áróru Heiðbjörtu sem knapa en nú er á honum Herjólfur Hrafn Stefánsson. Agnar Þór er á Kvisti frá Kommu sem hefur náð frábærum árangri í skeiðgreinum það sama má segja um Mette Mannseth á Vívaldi frá Torfunesi, Daníel Gunnarsson á Smára frá Sauðanesi og Matthías Sigurðsson á Gnúpi frá Dallandi, svo dæmi séu tekinn.
Ráslisti í skeiði
| Flugskeið 100m P2 Fullorðinsflokkur – Meistaraflokkur | |||
| 1 | Matthías Sigurðsson | Gnúpur frá Dallandi | Hrímnir /Hestklettur |
| 2 | Uppboðssæti-Þórey Þula Helgadóttir | Hrina frá Hólum | |
| 3 | Björg Ingólfsdóttir | Grímnir frá Þóroddsstöðum | Lífland |
| 4 | Guðmar Freyr Magnússon | Spölur frá Efri-Þverá | Þúfur |
| 5 | Björgvin Helgason | Karlsberg frá Kommu | Bústólpi |
| 6 | Atli Freyr Maríönnuson | Elmar frá Staðarhofi | Hofstorfan /550 |
| 7 | Freyja Amble Gísladóttir | Dalvík frá Dalvík | Íbishóll |
| 8 | Elvar Logi Friðriksson | Kuldi frá Skipaskaga | Uppsteypa |
| 9 | Bjarni Jónasson | Eðalsteinn frá Litlu-Brekku | StormRider |
| 10 | Emma Thorlacius | Númi frá Hólum | Exar |
| 11 | Kristján Árni Birgisson | Sviðrir frá Reykjavík | Hrímnir /Hestklettur |
| 12 | Konráð Valur Sveinsson | Kastor frá Garðshorni á Þelamörk | Íbishóll |
| 13 | Auður Karen Auðbjörnsdóttir | Spes frá Stóra-Hofi | Lífland |
| 14 | Sigrún Rós Helgadóttir | Gjöf frá Hofi á Höfðaströnd | Hofstorfan /550 |
| 15 | Daníel Gunnarsson | Smári frá Sauðanesi | Þúfur |
| 16 | Uppboðssæti-Sigurður Heiðar Birgisson | Tinna frá Ríp | |
| 17 | Herjólfur Hrafn Stefánsson | Tvistur frá Garðshorni | Bústólpi |
| 18 | Þorsteinn Björnsson | Fála frá Hólum | Uppsteypa |
| 19 | Ívar Örn Guðjónsson | Buska frá Sauðárkróki | StormRider |
| 20 | Guðrún Lilja Rúnarsdóttir | Kári frá Morastöðum | Exar |
| 21 | Lilja Dögg Ágústsdóttir | Stanley frá Hlemmiskeiði 3 | Lífland |
| 22 | Uppboðssæti-Vera Evi Schneiderchen | Sturla frá Bræðratungu | |
| 23 | Elvar Einarsson | Gáski frá Varmalandi | StormRider |
| 24 | Unnur Sigurpálsdóttir | Elva frá Miðsitju | Bústólpi |
| 25 | Herdís Björg Jóhannsdóttir | Gosi frá Staðartungu | Uppsteypa |
| 26 | Þórarinn Eymundsson | Lukka frá Breiðholti, Gbr. | Hrímnir /Hestklettur |
| 27 | Kristófer Darri Sigurðsson | Egla frá Hólum | Hofstorfan /550 |
| 28 | Sigurður Steingrímsson | Gjafar frá Hrafnsstöðum | Exar |
| 29 | Agnar Þór Magnússon | Kvistur frá Kommu | Íbishóll |
| 30 | Mette Mannseth | Vívaldi frá Torfunesi | Þúfur |
Allir hestaunnendur eru hvattir til að fylgjast með lokamóti Meistaradeildar KS hvort sem það er í sal eða í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Barist til þrautar í Meistaradeild KS
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
Ráslistar fyrir skeiðmót Meistaradeildarinnar
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Reynir og lið Hergils/Exporthesta sigurvegarar Vesturlandsdeildar