Bóndinn og verksmiðjan
Í Bíó Paradís er í sýningu íslenska heimildamyndin Bóndinn og verksmiðjan en myndin segir sögu bóndans að Kúludalsá í Hvalfirði sem neyddist til að fella hrossin sín eftir að þau veiktust hvert af öðru vegna meintrar flúormengunar frá álverksmiðju í nágrenninu.
„Hross á bæ í Hvalfirði veikjast hvert af öðru vegna meintrar flúormengunar frá álverksmiðju í nágrenninu. Bóndinn sem er tilneyddur til að slátra gripunum vegna veikindanna, tekst á við stóriðjuna, yfirvöld og nágranna sína til að komast að hinu sanna í málinu en á hún við ofurafl að etja?,“ segir í kynningu á myndinni.
Kvikmyndin hlaut áhorfendaverðlaun Skjaldborgar 2025, Einarinn, með afgerandi kosningu.
Miðasölu og sýningartíma má finna á bioparadis.is
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar
Um 700 gestir á Æskan og hesturinn og frumkvöðlar heiðraðir
Skráning hafin á opið íþróttamót Spretts