Börkur frá Enni efstur á kynbótasýningu í Hollandi
Börkur frá Enni á flugaskeiði Ljósmynd: Henk & Patty
Dómarar á sýningunni voru þær Elsa Albertsdóttir og Nina Bergholtz. Alls voru sýnd 29 hross á sýngunni og mörg þeirra hlutu góðar einkunnir.
Hæst dæmda hross sýningarinnar var átta vetra gamall stóðhestur, Börkur frá Enni, ræktaður af Haraldi Þór Jóhannessyni og Eindísi Kristjánsdóttur en í eigu Mw. I.M. Weijers. Börkur er undan Trymbli frá Stóra-Ási og Sendingu frá Enni. Hann hlaut 8,16 fyrir sköpulag og 8,51 fyrir hæfileika þar bar hæst 9,0 fyrir skeið og samstarfsvilja, sýnandi var Mw. M. Duintjer.
Þá má einnig nefna sex vetra gamlan stóðhest Sólon frá Álftakoti, ræktaður af Dhr. G.J. Hoogenboom og Dhr. T.G. Hoogenboom. Hann er undan Dívari från Lindnäs og Skák frá Þverá II. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,04 og fyrir hæfileika 8,34 í aðaleinkunn 8,23 sýndur af Mw. E. van der Veer.
Öll hross á sýningunni raðað eftir aðaleinkunn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH