Dregið í rásröð fyrir skeiðmót 1.deildar Hringdu
Lokamótið í 1.deild Hringdu fer fram á morgun, laugardaginn, 18. apríl, þegar keppt verður í gæðingaskeiði og 100 metra skeiði.
Mótið hefst klukkan 10:00 á morgun og er það Fóðurblandan sem er styrktaraðili dagsins. Mótið fer fram á Sörlastöðum í Hafnarfirði samhliða skeiðmótinu í Samskipadeildinni – Áhugamannadeild Spretts.
Á morgun samhliða mótinu verður svo dregið í beinni útsendingu í afmælisleik Ástundar og EiðfaxaTV en lesa má meira um hann með því að smella hér.
Arnar Bjarki Sigurðarson og Mummi í Ástund sjá um að draga og birtist það hér í þessari frétt klukkan 20:00 í kvöld.
Dregið í rásröð fyrir skeiðmót 1.deildar Hringdu
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Þórunn bar sigur úr býtum
Barist til þrautar í Meistaradeild KS