Eitt hross hlaut 9,5 fyrir hægt stökk
Dússý frá Vakurstöðum, knapi. Teitur Árnason. Mynd: Skjáskot af alendis.tv
Eitt hross hlaut einkunnina 9,5 fyrir hægt stökk í ár. Það var hryssan Dússý frá Vakurstöðum en hún er 6 vetra. Hlaut hún einkunnina á miðssumarssýningu á Gaddstaðaflötum.
Dússý hlaut í aðaleinkunn 8,61, fyrir hæfileika hlaut hún 8,60 og fyrir sköpulag 8,64. Sýnandi var Teitur Árnason. Ásamt því að hljóta 9,5 fyrir hægt stökk hlaut Dússý 9,0 fyrir tölt, brokk, samstarfsvilja, fegurð í reið, fet og hægt tölt.
Dússý er undan Hafsteini frá Vakurstöðum og Bjólu frá Feti sem er undan Leikni frá Vakurstöðum og Báru frá Feti. Ræktandi og eigandi Dússýjar er Halldóra Baldvinsdóttir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH