Eitthvað er spunnið í Spuna
Enn falla risatölur á Héraðssýningunni á Sörlastöðum í Hafnafirði.
Í morgun var Álfasteinssonurinn Spuni frá Vesturkoti sýndur. Hlaut hann í aðaleinkunn 8,64. Einkunnina 8,43 fékk hann fyrir sköpulag, þar af 9 fyrir samærmi og einkunnina 8,78 fyrir hæfileika, þar af 9,5 fyrir skeið og vilja og geðslag. Móðir Spuna er Stelpa frá Meðalfelli sem er undan Oddi frá Selfossi. Sýnandi Spuna var Þórður Þorgeirsson.
Það er ekki úr vegi að minna aftur á þétta dagskrá yfirlitssýningarinnar á Sörlastöðum sem fer fram um helgina. Þar geta áhugasamir skoðað glæsileg hross frá morgni til kvölds.
Hér er dómur Spuna frá Vesturkoti:
IS2006187114 Spuni frá Vesturkoti
Örmerki: 352206000059636
Litur: 3600 Jarpur/korg- einlitt
Ræktandi: Finnur Ingólfsson
Eigandi: Finnur Ingólfsson
F.: IS2001187660 Álfasteinn frá Selfossi
Ff.: IS1994158700 Keilir frá Miðsitju
Fm.: IS1996287660 Álfadís frá Selfossi
M.: IS1999225029 Stelpa frá Meðalfelli
Mf.: IS1987187700 Oddur frá Selfossi
Mm.: IS1989225030 Eydís frá Meðalfelli
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning Sörlastöðum
Mál (cm): 140 – 130 – 136 – 61 – 140 – 38 – 47 – 43 – 6,7 – 30,0 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 9,4 – V.a.: 8,5
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 7,5 – 8,0 – 8,0 = 8,43
Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 9,5 – 8,0 – 9,5 – 8,5 – 8,5 = 8,78
Aðaleinkunn: 8,64 Hægt tölt: 8,0 Hægt stökk: 7,0
Sýnandi: Þórður Þorgeirsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH