Elvar Þormarsson knapi ársins hjá Geysi

  • 27. nóvember 2023
  • Fréttir

Á laugardagskvöld fór fram uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Geysis í Hvolnum á Hvolsvelli. Uppskeruhátíðin var virkilega vel sótt og áttu Geysismenn frábært kvöld.

Stjórn Geysis óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þakkar öllum sem komu að hátíðinni með einum eða öðrum hætti. Sérstakar þakkir fær Sláturfélag Suðurlands fyrir að styrkja okkur um úrvals lambakjöt sem Bragi Þór Hansson matreiddi snilldarlega með góðri aðstoð frá Kvenfélaginu Bergþóru.

Eftirtaldir eru verðlaunahafar kvöldsins:

Knapi Geysis
Elvar Þormarsson

Gæðingaknapi Geysis
Vignir Siggeirsson

Íþróttaknapi Geysis
Elvar Þormarsson

Skeiðskálin
Hans Þór Hilmarsson

Ungmenni Geysis
Jón Ársæll Bergmann

Heimahagabikarinn – Áhugamaður Geysis
Sarah Maagard Nielsen

Mjölnisbikarinn
(Hæsta einkunn í tölti)
Arnhildur Helgadóttir og Vala frá Hjarðartúni (8.13)

Keppnishestabú Geysis
Strandarhjáleiga

Ræktunarbú Geysis
Fákshólar

Sjálfboðaliði Geysis
Páll Briem

Hryssubikar Geysis
Hlýtur sá Geysisfélagi sem er ræktandi og eigandi af hæðst dæmdu hryssu í kynbótadómi á árinu.
Hrönn frá Fákshólum (8.55)

Stóðhestabikar Geysis
Hlýtur sá Geysisfélagi sem er ræktandi og eigandi af hæðst dæmda stóðhest í kynbótadómi á árinu.
Geisli frá Árbæ (8.60)

 

Hæðst dæmdu hross ræktuð af Geysisfélaga

7 vetra og eldri
Katla frá Hemlu – 8,79
Kraftur frá Eystra-Fróðholti – 8,46

6 vetra
Hrönn frá Fákshólum – 8,68
Geisli frá Árbæ – 8,60

5 vetra
Edda frá Rauðalæk – 8,37
Þórshamar frá Reykjavík – 8,45

4 vetra
Nóta frá Sumarliðabæ 2 – 8,37
Álfatýr frá Skíðbakka I – 7,90

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar