Á Kaffistofunni – Fóðrun og Tannheilbrigði


Tíundi þátturinn af Á Kaffistofunni er nú kominn í loftið en þættirnir eru samvinnuverkefni Arnars Bjarka Sigurðarsonar, Hjörvars Ágústssonar og Eiðfaxa.
Viðmælendur þáttarstjórnandans síkáta, Hjörvars Ágústssonar, að þessu sinni eru tveir fagmenn á sínu sviði þau Sonja Líndal Þórisdóttir og Einar Ásgeirsson. Í þættinum fræða þau hlustendur um margt það sem viðkemur fóðrun og heilbrigði hrossa og nýta sína menntun og þekkingu til þess.
Einar Ásgeirsson er menntaður hestafræðingur með framhaldsmenntun í fóðurfræði og starfar sem slíkur hjá Fóðurblöndunni, þá er hann einnig alþjóðlegur kynbótadómari hrossa. Sonja Líndal Þórisdóttir er menntaður reiðkennari frá Hólum. Hún er einnig dýralæknir sem sérhæfir sig í hestatannlækningum og starfar við það ásamt því að vera dugleg að miðla þekkingu á því sviði.
Góðar hugmyndir verða ekki að veruleika nema með stuðningi góðra aðila. Helstu styrktaraðilar þáttarins eru; KEMI, Vagnar & Þjónusta, Ísbúðin Valdís og Sleipnir Hestaflutningar ehf.
Logo þáttarins hannaði Marta Gunnarsdóttir!