Endurmenntunarnámskeið Knapamerkjanna

  • 21. nóvember 2019
  • Fréttir

Mjög góð þátttaka var í námskeiðinu en um 40 reiðkennarar mættu

Námskeiðið var haldið laugardaginn 16.nóvember sl.

Mjög góð þátttaka var á námskeiðinu en um 40 reiðkennarar mættu. Námskeiðið er nauðsynlegur þáttur í því að viðhalda prófdómararéttindum Knapamerkjanna. Rætt var um stöðu og framtíð Knapamerkjanna, Mette Mannseth yfirreiðkennari Hólaskóla hélt fyrirlestur um kennslu og kennslufræði auk þess sem þó nokkur verkleg próf voru riðin fyrir þátttakendur og þau dæmd.

Öll verkleg próf hafa nú verið uppfærð í samræmi við uppfærðar bækur. Prófin hafa tekið nokkrum breytingum og munu uppfærð próf verða birt og taka gildi 1.janúar 2020. Allar upplýsingar um Knapamerkin er að finna á heimasíðunni knapamerki.is og á facebook síðunni – Knapamerkin.

Gaman er að segja frá því að bækurnar fyrir 4. og 5.stig Knapamerkjanna hafa verið uppfærðar og eru komnar úr prentun. Nánar verður greint frá því á næstu dögum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link