Feykir í 8,6 á kynbótasýningu í Herning-

  • 28. apríl 2012
  • Fréttir
Feykir í 8,6 á kynbótasýningu í Herning-

Um helgina fer fram yfirlitssýning á fyrstu kynbótasýningin í Danmörku á árinu. Alls voru 115 hross skráð til dóms og koma þau allstaðar af frá Norðurlöndum t.d. allmörg frá Noregi og er Erlingur Erlingsson skráður á 22 hross í sýningu. Byggingardómar hófust á miðvikudaginn en frá því í föstudag hafa hrossin verið sýnd í braut.

 
Heimsleikafarinn okkar, Feykir frá Háholti, hefur hlotið langhæstu aðaleinkunn þeirra hesta sem nú hafa komið fram 8,60 og er greinilega í feiknaformi, bætir töluvert við sig síðan í Austurríki í fyrra þegar hann hlaut 8,38.
Þessi föngulegi hestur hlaut 8,72 fyrir sköpulag og hlaut nú 8,52 fyrir kosti, þar af einkunnina 9 fyrir tölt og vilja og geðslag. Sýnandi Feykis er Rasmus Møller Jensen.
 
Sent er beint út frá sýningunni HÉR og er hægt að nálgast fleiri upplýsingar um sýninguna og hrossin hér eða á Veraldarfeng.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link