Firmakeppni Léttfeta

  • 27. maí 2011
  • Fréttir
Firmakeppni Léttfeta

Firmakeppni Léttfeta, sem var frestað um um síðustu helgi vegna veðurs, verður haldin á félagssvæði Léttfeta, Fluguskeiði, á Sauðárkróki sunnudaginn 29. maí nk. að er fram kemur í tilkynningu frá mótanefnd félagsins.

„Skráning í Tjarnarbæ milli kl. 13:00 – 13:30 en keppni hefst kl. 14:00.

Keppt verður í:  Barnaflokki  (13 ára á árinu og yngri), Unglingaflokki (14 – 17  ára á árinu), Ungmennaflokki (18 -21 ára á árinu), Kvennaflokki og Karlaflokki.

Verðlaunaafhending og kaffiveitingar að lokinni keppni í Tjarnabæ.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link