Forvarnar- og fræðslufyrirlestur

  • 26. nóvember 2010
  • Fréttir
Forvarnar- og fræðslufyrirlestur

Haldinn verður forvarnar- og fræðslufyrirlestur að Funaborg sunnudaginn 28 nóvember…

Fulltrúi frá VÍS kemur og verður með kynningu á tryggingum fyrir hesta og hestamenn.
Elfa Ágústsdóttir dýralæknir fer yfir helstu slysagildrur í hesthúsum, hvers ber að varast þegar hestar eru teknir á hús og hvað er gott að eiga til í sjúkrakassanum.
Lífland mætir á svæðið og verður með öryggisbúnað til sýnis.
Húsið opnar kl. 15:30 og fyrirlestrar hefjast kl. 16:00, opnað verður fyrir umræður að fyrirlestrum loknum.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link