Framlengdur skráningarfrestur
Í ljósi frestunar þriðju skeiðleika vegna vætutíðar í síðustu viku, hefur Skeiðfélagið ákveðið í samráði við veðurfræðing að bjóða upp á áframhaldandi skráningu á leikana. Verður opið fyrir skráningu til 12:00 á hádegi sunnudaginn 30. júní. En leikarnir hefjast mánudaginn 1 júlí kl. 20:00, stundvíslega.
Vegna mikillar ásóknar þeirra sem þegar eru búnir að skrá sig um að halda þeim skráningum, verður lagt upp með það að þeir sem vilja afskrá vegna frestunar leikana, tilkynni það hjá [email protected] , ella verður litið svo á að fyrri skráning gildi óbreytt. Endurraðað verður ráslistum vegna hinnar framlengdu skráningar.
Hrossaræktarbúið Kvistir og Hrossaræktarbúið Árbær, styrkja okkur um verðlaunagripi að þessu sinni. Einnig er hnakkurinn góði frá Baldvin og Þorvaldi ehf. á sínum stað, þar sem enginn hefur enn slegið Íslandsmet á leikunum.
Dagskrá leikanna ásamt nýjum ráslistum verður birt þegar nær dregur.
Kv. Skeiðfélagið.