Fundarferð um landið
Almennir fundir í fundarröð stjórnar hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt um málefni hrossaræktarinnar hefjast í febrúar.
Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:
Málefni hrossabænda
Notkun keppnisdóma í kynbótamatinu
Þróun kynbótadómsins
Hrossaræktin almennt
Eins og sjá má verður margt áhugavert á döfinni.
Fulltrúar hrossabænda og fagráðs, þau Nanna Jónsdóttir formaður stjórnar hrossabænda og fagráðs og Þorvaldur Kristjánsson, hrossaræktarráðunautur verða á ferðinni.
Fundirnir verða haldnir um allt land en þeir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:
4. febrúar þriðjudagur Borgarnes – Félagsheimili Borgfirðings kl. 20:00.
5. febrúar miðvikudagur Eyjafjörður – Reiðhöllin á Akureyri kl. 20:00.
6. febrúar fimmtudagur Skagafjörður – Tjarnarbær Sauðárkrókur kl. 16:00.
7. febrúar föstudagur V-Húnavatnssýsla – Víðihlíð kl. 20:00.
10. febrúar mánudagur Reykjavík – Reiðhöllin í Víðidal kl. 20:00.
11. febrúar þriðjudagur Suðurland – Rangárhöllin Hellu kl. 20:00
17. febrúar mánudagur Austurland – Félagsheimili Freyfaxa Stekkhólma kl. 20:00.
18. febrúar þriðjudagur – Höfn í Hornafirði – Fornustekkar kl. 20:00
Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.