Fundir á Suðurlandi
Fundarferð Félags hrossabænda og fagráðs heldur áfram og næstu fundir verða haldnir á Suðurlandi. Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum og hefjast kl 20:00.
Þriðjudaginn 25. feb. í Fákaseli (Ölfushöllinni) í Ölfusi.
Miðvikudaginn 26. feb. Félagsheimili Fáks í Víðidal í Reykjavík.
Með fulltrúum fagráðs, þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og fagráðs og Gunnfríði Elínu Hreiðarsdóttur ritara fagráðs, er Haraldur Þórarinsson formaður Landsbands Hestamannafélaga og munu þau verða frummælendur fundanna.
Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér starfsemina í greininni, leita upplýsinga hjá forystunni og leggja sitt til málanna!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum