Fyrsta keppnismót fatlaðra ungmenna – viðtal og myndir

  • 25. maí 2011
  • Fréttir
Fyrsta keppnismót fatlaðra ungmenna - viðtal og myndir

Í vetur hafa fimm ungmenni á aldrinum 13 – 20 ára tekið þátt í námskeiðum sem fræðslunefnd fatlaðra hjá hestamannafélaginu Herði hefur staðið fyrir.“Við skipulögðum þetta námskeið fyrir reiðmenn með einhvers konar fötlun eða skerðingu. Krakkarnir hafa verið á námskeiðum hjá okkur í allan vetur og nú síðast á sérstöku keppnisnámskeiði sem var miðað að því að undirbúa þau fyrir mót sem við stöndum fyrir á föstudag,” segir Auður G. Sigurðardóttir formaður fræðslunefndarinnar.

Þau ungmenni sem tekið hafa þátt í námskeiðinu í vetur höfðu flest farið á hestbak áður, en þá aðallega í formi sjúkraþjálfunar. “Þau hafa æft öll sama prógrammið í vetur en þau eiga flest við mjög ólíkar skerðingar að stríða og hver og á föstudag mun hver knapi keppa á sínum eigin forsendum sem reynir á einstaklingsbundna getu þeirra,” segir Auður.

“Við höfum verið í samstarfi við Berglindi og Þórhildi hjá Hestamennt en þær hafa áralanga reynslu af reiðkennslu fyrir fatlaða. Einnig hefur Heidi Andersen sjúkraþjálfari lagt okkur ómetanlegt lið með ráðgjöf og aðstoð með reiðmennina okkar. Markmið námskeiðsins var aðallega að bjóða upp á námskeið þar sem ungmennin geta átt frábærar stundir saman í skemmtilegu umhverfi, þar sem þau geta umgengist hesta af öryggi og óttaleysi. Þau kynnast hestinum og læra undirstöðuatriði í umhirðu hestsins, auka sjálfstæði sitt og færni í samskiptum við hesta um leið og þau bæta líkamsvitund, að auka samhæfingu handa, fóta og skynfæra, styrkja leiðtogahlutverk í samskiptum við hestinn,” segir Auður sem segist hafa fundið fyrir vaxandi eftirspurn frá fólki á öllum aldri með mismunandi færni vilja komast á hestbak. “Við höfum til dæmis fengið fyrirspurnir frá fólki sem hefur verið í endurhæfingu og fólki sem hugsanlega hefur verið í hestamennsku áður en þarf aðstoð í dag til að halda áfram að stunda þetta áhugamál,” segir hún.

Keppnismót fatlaðra ungmenna verður haldið verður nk. föstudag 27. maí kl. 17 í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ.

“Keppnin er fimimót og er haft til viðmiðunar keppnisreglur frá alþjóðlegum samböndum sem sérhæfa sig í keppnishaldi fyrir fatlaða reiðmenn eða International Para-Equestrian Association. Keppnisreglurnar hafa þó verið aðlagaðar til að standa undir hinu smáa formi keppninnar hér. Keppt verður í fimikeppni sem snýr að því að keppendur ríða ákveðna reiðleið innan vallar og dæmt er eftir tækni, samspil hests og knapa, takt, flæði og notkun vallar,” segir Auður sem vonar að keppnin verði hvatning fyrir alla þá sem eiga við einhvers konar fötlun að stríða og hafa áhuga á hestamennsku sem keppnisíþrótt meðal annars.

Meðfylgjandi eru myndir frá starfi ungmennanna í vetur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link