Fyrsta WR mótið í Færeyjum

  • 16. maí 2011
  • Fréttir
Fyrsta WR mótið í Færeyjum

Um helgina héldu Færeyingar sitt fyrsta WR mót og fór það fram á svæði Føroyskt Íslandsrossafelag í Havnardali…

Árangur á mótinu var nokkuð góður en 12 sýningar hlutu lágmarkeinkunn til skráningar á heimslistann. Helstu úrslit urðu þau að Jaspur Svabo Jørgensen og Straumur frá Kirkjubæ sigruðu í fjórgangi, Heri Djurhuus Dahl og Höttur vom Störtal í fimmgangi, Gunnar Grækarisson og Skilir frá Hæli í slaktaumatölti og Óluva Á Lofti og Huginn frá Útnyrðingsstöðum í tölti T1 en Óluva hlaut einnig sérstaka viðurkenningu fyrir prúða reiðmennsku. Daginn fyrir mótið fór fram fyrsta íþróttadómarapróf sem efnt hefur verið til í Færeyjum og náðu fjórir próftakar landsdómaraprófi og einn héraðsdómaraprófi.
Þorgeir Guðlaugsson
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link