Gæðinga- og úrtökumót hjá Skugga og Glað

  • 28. maí 2011
  • Fréttir
Gæðinga- og úrtökumót hjá Skugga og Glað

Hestamannafélagið Skuggi í samvinnu við Arionbanka heldur gæðingamót sitt á velli félagsins við Vindás laugardaginn 4. Júní nk. Mótið er jafnfram úrtaka fyrir Landsmót fyrir hestamannafélögin Skugga og Glað.

Mótið hefst kl. 10 með undankeppni í eftirfarandi flokkum og röð:

Barnaflokkur
Unglingaflokkur
Ungmennaflokkur
B-flokkur gæðinga
A-flokkur gæðinga

Að afloknu hádegishléi hefjast úrslit og verða þau riðin í sömu röð og undankeppnin. Verðlaun verða veitt fyrir 5 efstu sæti og glæsilegasta hest mótsins.

Kappreiðar fara fram að gæðingakeppni lokinni, þá verður keppt í 200 m. Stökki og brokki og 150 m. Skeiði. Skráning fer fram í félagsheimili á meðan á úrslitum gæðingakeppni stendur.

Skráningar á gæðingamót skulu berast í netfangið [email protected] fyrir kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 2. Júní. Þar þarf að koma fram flokkur, kennitala knapa og IS tala hests. Hestar þurfa að vera í eigu félagmanns Skugga til að vera gjaldgengir til leiks skv. reglum LH. Ráslistar munu birtast á heimasíðu Skugga á fimmtudagskvöld. Upplýsingar gefur Reynir í s. 860-9014.

 

Þetta kemur í fréttatilkynningu frá mótanefnd Skugga.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link