Gæðingaknapi ársins
Gæðingaknapi ársins 2025 er Jakob Svavar Sigurðsson en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga sem haldin er í Gamla bíó. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:
„Jakob sigraði B-flokk á Fjórðungsmóti Vesturlands á eftirminnilegan hátt á Kór frá Skálakoti með einkunina 9,24. Reiðmennska Jakobs geislar ávallt af fagmennsku og krafti, Jakob er gæðingaknapi ársins 2025.“
Eiðfaxi óskar Jakobi Svavari innilega til hamingju með árangur ársins!
Aðrir tilnefndir voru:
- Daníel Jónsson
- Gústaf Ásgeir Hinriksson
- Hlynur Guðmundsson
- Sigurður Sigurðarson
Gæðingaknapi ársins
„Okkur líður vel í Svíþjóð og höfum komið okkur vel fyrir“
Vel heppnaðir fræðslufundir hjá Hestamannafélaginu Létti