Gammur frá Steinnesi allur
Gæðingurinn Gammur frá Steinnesi féll í sumar, 30. vetra, en frá þessu greindu eigendur hans Magnús Jósefsson og fjölskyldan í Steinnesi. Gammur var undan Sprota frá Hæli og Sif frá Blönduósi. Hann hlaut hæst í kynbótadómi 8.03 og á hann skráð 803 afkvæmi í WorldFeng.
Hér fyrir neðan er pistill sem birtist á Facebooksíðu Steinnes sem fjallar um fráfall Gamms.
Þá hefur Gammur okkar gengið sinn hinsta spöl. Á vordögum tók að draga af kappanum, orðinn þrítugur.
Gammur var fyrst og fremst einstakur höfðingi, vinur og gleðigjafi. Á yngri árum var hann jafnan kallaður vorboði okkar Húnvetninga en hann og Tryggvi Björnsson fóru ófáar ferðir á kynbótabrautina eftir að hafa legið saman undir feldi yfir svartasta skammdegið.
Gammur fór á Landsmót árið 2006 þá með nýjum knapa, Helga Una var að þjálfa klárinn og enduðu þau í þriðja sæti í unglingaflokk.

Gammur og hans afkvæmi hafa skilað okkur mörgum dýrmætum stundum. Við eigum og höfum eignast mörg undan honum, það sem einkennir þau er einstakt geðslag, auðtamin með góðar grunngangtegundir og mikla mýkt á tölti.
Núna, mörgum árum og upplifunum seinna þá eru það ekki hans afrek sem að standa upp úr heldur afkomendur hans og sú gleði sem hann virðist skila áfram, hvort heldur sem litið er til áhugamennsku og yndisauka eða í keppni og ræktun á stóra sviðinu.
Þó nokkrar Gammsdætur eru farnar að skila eftirtektarverðum afkvæmum. Eftirfarandi koma upp í hugan:
Ólga frá Steinnesi. Sonur hennar Drangur frá Steinnesi sigraði flokk 7.vetra stóðhesta á Landsmótinu í Reykjavík 2024. Dótturdóttir hennar Óskastund frá Steinnesi fór fyrir Íslands hönd á HM í fyrra, varð þar heimsmeistari í flokki 5. vetra hryssna með aðaleinkunn upp á 8.65 og hæfileika 8.85.
Sunna frá Steinnesi, hennar afkvæmi sem fyrst ber að nefna er Kiljansdóttirin Telma frá Steinnesi en hún hlaut heiðursverðlaun 2025. Önnur dóttir Sunnu sem er eftirtektarverð er Skýsdóttirin Selma frá Fákshólum en hún er sem stendur að keppa í flokki 6. vetra hryssna á LM.
Katla frá Steinnesi, hún hlaut heiðursverðlaun 2023. Hennar afkvæmi sem skara hvað mest fram úr eru systkinin Röðull og Sunna frá Haukagili en þau hafa riðið mörg A-úrslitin í tölti, hvort sem er á LM eða Íslandsmótum, setin af ofurparinu Flosa og Brynju. Einnig hefur Goðasteinn frá Haukagili verið sterkur á keppnisvellinum en hann keppti á HM fyrir Íslands hönd. Hekla frá Steinnesi, dóttir Kötlu var valin keppnishestur Svíþjóðar 2024. Skerpla frá Haukagili er sem stendur í 6v. flokki hryssna á LM.
Hrafnhetta frá Steinnesi, hefur verið öflug hryssa í ræktun hjá fjölskyldunni í Vesturkoti, þrjár dætur hennar hafa hlotið fyrstu verðlaun, þar ber hæst að nefna alhliðahryssuna Ronju frá Vesturkoti sem á ófáa sprettina hvort sem er á beinni braut eða hringvelli.
Díva frá Steinnesi, þar er dóttir hennar Dögun frá Króksstöðum fyrst á blað, er sem stendur að keppa á LM í flokki 6 vetra hryssna.
Kara frá Grafarkoti, hefur verið að skila úrvals hrossum hjá þeim Indriða og Herdísi, þar ber að nefna Kiljansdóttirina Eind frá Grafarkoti, hún hlaut hæsta 8.69 í aðaleinkunn, 8.85 fyrir hæfileika sem skilaði henni á HM í Sviss á síðasta ári sem hluti af íslenska landsliðinu.
Birta frá Efri-Fitjum, hefur skilað virkilega öflugum hrossum, hvort heldur sem er í keppni eða á kynbótabraut. Fimm afkvæmi hafa hlotið fyrstu verðlaun.
Ófáir synir hans hafa rennt sér nokkrar ferðir á vellina með góðum árangri, þar fer fremstur Hrafnfaxi frá Skeggstöðum sem var með öflugri slaktauma tölturum landsins um tíma, var í landsliðshópi Íslands. Garpur frá Hvoli gerði það einnig gott sem og Ljósvaki frá Steinnesi. Máni frá Galtanesi og Linda Rún voru einnig sterkt par.
Minnast skal á Bárð frá Melabergi, en hann er undan Gammsdótturinni Skrítlu frá Grímstungu. Bárður og knapi hans Jóhanna Margrét slógu eftirminnilega í gegn trekk í trekk hérlendis og fór svo á stóra sviðið, Heimsmeistaramót þar sem hann varð heimsmeistari í tölti og samanlögðum fjórgangsgreinum en rétt missti af gulli í fjórgangi.
Þá eru ótalin öll þau afkvæmi sem hafa glatt unga sem aldna sem fjölskyldu og útreiða hross vítt og breytt um heiminn.
Hross veiktust á Norðurlandamótinu
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Opið fyrir umsóknir liða í Meistaradeild KS