Garðshorn á Þelamörk er keppnishestabú ársins
Keppnishestabú ársins 2024 er Garðshorn á Þelamörk en valið var kunngjört rétt í þessu á Uppskeruhátíð Landsambands hestamannafélaga og deildar hrossabænda innan BÍ sem haldin er í Gullhömrum. Í tilkynningu frá Landssambandinu kemur fram:
„Ræktunarbúið Garðshorn á Þelamörk hefur á árinu átt fjölda hrossa í keppni víða um heim. Fremstur í flokki fer Kastor sem náði frábærum árangri á árinu en hann var meðal annars Íslandsmeistari, Reykjavíkurmeistari og tvöfaldur Landsmótssigurvegari í skeiðgreinum. Leynir vann til silfurverðlauna í A-flokki á Landsmóti hestamanna með 8.93 í einlkunn og rétt á hæla hans einungis 0.01 kommu á eftir var Sirkus með 8.92. Ómar og Adrían náðu einnig góðum árangri í sínum greinum á erlendri grund. Garðshorn á Þelamörk ræktar afburðagóð keppnishross sem ná árangri í keppni á öllum sviðum og hlýtur nafnbótina Keppnishestabú ársins 2024.“
Eiðfaxi óskar ræktendunum Agnari Þór og Birnu innilega til hamingju með árangur ársins!
Önnur bú tilnefnd voru:
- Fet
- Kagaðarhóll
- Kirkjubær
- Vorsabær II