Gísli og Trymbill sigruðu í gæðingafimi

  • 9. apríl 2015
  • Fréttir
Liðsmenn Draupnis/Þúfur röðuðu sér í þrjú efstu sætin.

 Gísli Gíslason og Trymbill frá Stóra-Ási stóðu uppi sem sigurvegarar í fyrstu gæðingafimikeppni KS-deildarinnar sem haldin var í gærkvöldi. Lið Draupnis/Þúfur röðuðu sér í þrjú efstu sætin því  annar varð Þorsteinn Björnsson sem átti magnaða sýningu í úrslitum á hrysunni Krónu frá Hólum. Mette Mannseth varð í þriðja sæti með hest sinn Hnokka frá Þúfum.  Liðsbikar gæðingafiminnar varð því þeirra.

Hér eru lokaúrslit keppninnar.

  1. Gísli Gíslason & Trymbill frá Stóra-Ási – 8,07
  2. Þorsteinn Björnsson & Króna frá Hólum – 7,93
  3. Mette Mannseth & Hnokki frá Þúfum – 7,66
  4. Þórarinn Eymundsson & Taktur frá Varmalæk – 7,53
  5. Hanna Rún & Nótt frá Sörlatungu – 7,17

„Þessi fyrsta keppni í gæðingafimi í KS-Deildinni tókst mjög vel og með réttri þróun á þessari keppni er hægt að gera hana enn áhugaverðari,“ segir í frétt frá aðstandendum KS-deildarinnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link